Innlent

Halda í vonina en búa sig undir verkfall

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Hjúkrunar- og öldrunarheimilið Hlíð á Akureyri er einn þriggja stærstu vinnustaða sem yfirvofandi verkfall sjúkraliða myndi ná til. Að óbreyttu hefst verkfall sjúkraliða hjá sveitarfélögum næsta mánudag. Formaður Sjúkraliðafélags Íslands kvaðst ekki bjartsýnn eftir fund í gær. Næsti fundur er fyrirhugaður á morgun. Undirbúningur hafinn á hjúkrunarheimilum.
Hjúkrunar- og öldrunarheimilið Hlíð á Akureyri er einn þriggja stærstu vinnustaða sem yfirvofandi verkfall sjúkraliða myndi ná til. Að óbreyttu hefst verkfall sjúkraliða hjá sveitarfélögum næsta mánudag. Formaður Sjúkraliðafélags Íslands kvaðst ekki bjartsýnn eftir fund í gær. Næsti fundur er fyrirhugaður á morgun. Undirbúningur hafinn á hjúkrunarheimilum. Visir/Heiða
Kjaramál Hægur gangur eru í viðræðum samninganefnda Sjúkraliðafélags Íslands (SLFÍ) og Sambands íslenskra sveitarfélaga hjá ríkissáttasemjara.

„Ég er ekki bjartsýn,“ segir Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður SLFÍ, um stöðu viðræðnanna, eftir samningafund hjá ríkissáttasemjara í gær.

„En við verðum bara að vona það besta.“ Næsti fundur í deilu sjúkraliða og sveitarfélaga er boðaður í fyrramálið.

Sjúkraliðar hafa samþykkt verkfall frá og með næsta mánudegi, 4. apríl, takist samningar ekki. Verkfallið nær til sjúkraliða um allt land, utan Reykjavíkur, þar sem sveitarfélög reka öldrunar- og hjúkrunarþjónustu, auk félagsþjónustu sem sjúkraliðar vinna við. Stærstu staðirnir eru Hlíð á Akureyri, Brákarhlíð í Borgarfirði og Ísafold í Garðabæ.



Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands
Halldór Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar, segir að þar á bæ, líkt og annars staðar, sé gert ráð fyrir að fólki auðnist að leysa þessi mál áður en komi til verkfalla. „Og það komi ekki til þess að þetta þurfi að bitna á þeim sem síst skyldi.“

Til vara segir Halldór svo að til reiðu séu undanþágulistar og vinnuáætlanir sem gripið verði til ef svo illa fari að til verkfalla þurfi að koma. „Síðan, eins og í öðrum tilfellum þar sem kemur til einhver skerðing á starfsemi í heilbrigðis- eða félagslegri þjónustu, er varaaflið fjölskyldur fólks. Og það kann auðvitað að koma til þess að við verðum að reiða okkur á stuðning aðstandenda.“

Gangur virðist betri í viðræðum samninganefnda hjúkrunarfræðinga og sveitarfélaga, en hjá sjúkraliðum. Í frétt af viðræðunum á vef Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga kemur fram að síðast hafi verið fundað á þriðjudag. „Góður gangur er í viðræðunum og munu samninganefndirnar hittast aftur í byrjun næstu viku,“ segir þar.

Á þriðjudag liggur svo fyrir hvort félagar í níu félögum Bandalags háskólamanna (BHM) samþykkja eða hafna kjarasamningi sem gerður var við sveitarfélögin 21. mars síðastliðinn. 

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 31. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×