Óvænt bakslag á nýju munaðarleysingjahæli Garðar Örn Úlfarsson skrifar 31. mars 2016 07:00 "Ég gæti bilast hvað ég er reið yfir spillingunni í þessu landi. Ég er svo reið og sár að ég á ekki til orð yfir þessu öllu saman. Sem betur fer veit ég að elsku litla stelpan mín er í góðum höndum,“ skrifar Anna Þóra Baldursdóttir á styrktarsíðu barnaheimilisins Villekulla. Mynd/Aníta G. Axelsdóttir „
Í gær upplifði ég einn versta dag lífs míns,“ skrifaði forstöðumaðurinn Anna Þóra Baldursdóttir á Facebook-síðu barnaheimilisins Villekulla á skírdag. Stöð 2 greindi frá því fyrir ári að Anna Þóra Baldursdóttir og sænsk vinkona hennar hygðust opna heimili fyrir munaðarlaus börn í Naíróbí í Kenía. Anna Þóra hafði þá verið sjálfboðaliði á slíku heimili eftir að hún fór fyrst út árið 2013. Í Fréttablaðinu 10. febrúar síðastliðinn sagði Aníta G. Axelsdóttir, sem þá var á leið út til að starfa á nýja heimilinu, að starfsleyfi væri loks í höfn. Nýfædd stúlka væri komin á heimilið.Arusha litla.Snurða er nú hlaupin á þráðinn. „Ég frétti að barnaverndarfulltrúi lögreglunnar væri ósáttur við að litla daman væri hjá okkur,“ skrifar Anna á síðu Villekulla. Hún kveður barnaverndarfulltrúann hafa talið pappírsvinnuna ófullnægjandi og að heimilið hefði ekki rétt á að hafa barnið. „Ég varð því að fara og sækja hana og koma með hana innan klukkutíma.“ Anna Þóra segir skrítið að sá sem bað hana um aðstoð með því að taka við stúlkunni, sem heitir Arusha, sé með nákvæmlega sömu pappíra og hún til þess að hefja rekstur heimilisins. „Heimilið sem hún færði barnið á er líka með nákvæmlega sömu pappíra og ég en samt var í lagi að setja hana þangað. Þessi heimili og svo mörg fleiri eru því með allt sama og ég,“ lýsir Anna Þóra sem kveður því nú borið við að verið sé að breyta reglum og að hún þurfi að ljúka öðru ferli áður en hún taki við börnum. „Ég gæti bilast hvað ég er reið yfir spillingunni í þessu landi. Ég er svo reið og sár að ég á ekki til orð yfir þessu öllu saman. Sem betur fer veit ég að elsku litla stelpan mín er í góðum höndum,“ skrifar Anna Þóra Baldursdóttir á styrktarsíðu barnaheimilisins Villekulla.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Fleiri fréttir Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Sjá meira