Innlent

Sammála um óbreytta vexti

Már Guðmundsson seðlabankastjóri lagði til óbreytta stýrivexti á fundi peningastefnunefndar. fréttablaðið/pjetur
Már Guðmundsson seðlabankastjóri lagði til óbreytta stýrivexti á fundi peningastefnunefndar. fréttablaðið/pjetur
Enginn nefndarmanna í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands taldi ástæðu til að breyta stýrivöxtum á síðasta fundi nefndarinnar, sem fór fram 16. mars. Í fundargerð peningastefnunefndar sem birt var í gær kemur fram að nefndin hafi verið sammála um að líklegt væri að hækka þyrfti stýrivexti enn frekar á næstu misserum í ljósi vaxandi innlends verðbólguþrýstings þrátt fyrir að alþjóðleg verðlagsþróun og sterkari króna veiti svigrúm til að hækka vexti hægar en áður var talið nauðsynlegt. Stýrivextirnir voru hækkaðir um 1,25 prósentustig á síðasta ári og eru nú 5,75 prósent. – ih



Fleiri fréttir

Sjá meira


×