Innlent

Í nógu að snúast hjá björgunarsveitum

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Vilhelm
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Dalvík, Hólmavík, Mývatni og Seyðisfirði voru kallaðar út í nótt og í dag vegna ökumanna sem höfðu fest bíla sína. Hátt í tíu bílar eru nú fastir á Hólasandi og eru björgunarsveitarmenn frá Mývatni á leið til aðstoðar.

Í tilkynningu frá Landsbjörg er bent á að víða sé þungfært og einhverjir vegir séu lokaði. Bent er á að kanna aðstæður vel áður en lagt er í hann, þar sem erfiðar aðstæður í dag og á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×