Enn ein skýrslan og hvað svo? Sæunn Kjartansdóttir skrifar 10. mars 2016 07:00 Þakka ber fyrir skýrslu Ríkisendurskoðunar um geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga þó að svört sé. Niðurstaða hennar staðfestir það sem óteljandi skýrslur hafa sýnt undanfarin ár og áratugi; Stjórnvöld hafa ekki staðið við skyldur sínar gagnvart börnum á öllum aldri eins og íslensk lög og alþjóðlegir samningar kveða á um. Mörg hundruð börn bíða mánuðum og jafnvel árum saman eftir nauðsynlegri þjónustu og það þykir orðið venjulegt. Stefnu- og ráðaleysi stjórnvalda í geðheilbrigðismálum barna varð til þess að árið 2011 tók fagfólk í geðheilbrigðisþjónustu frumkvæði að því að stofna Miðstöð foreldra og barna. Miðstöðin sinnir ítarþjónustu fyrir foreldra og ungbörn með geðheilsuvanda á meðgöngu og fyrsta ári barnsins en hefur árlega þurft að berjast fyrir tilveru sinni. Nú hefur myndast þar biðlisti sem aldrei skyldi vera því að ungbörn geta ekki beðið. Það eiga smábörn ekki heldur að gera en þau komast ekki einu sinni á biðlistana illræmdu. Hvernig stendur á því? Í okkar rómaða velferðarkerfi er sérhæfð geðheilbrigðisþjónusta fyrir börn á aldrinum eins til fimm ára einfaldlega ekki til. Smábörn sem þurfa slíka aðstoð mega bíða þangað til þau komast á biðlista BUGL sem er um það leyti sem þau byrja í grunnskóla. Ef einhverjir halda að vanlíðan og streita ungra barna sé léttvæg vil ég benda á The ACE Study (Adverse Childhood Experiences/erfið reynsla í barnæsku). Rannsóknin hefur verið í gangi frá árinu 1995 með 17.000 þátttakendum og um hana hafa verið skrifaðir tugir vísindagreina. Í henni kemur fram að áföll og streita í æsku auki verulega líkur á heilsubresti á fullorðinsárum. Því fleiri áföll þeim mun meiri áhætta. Sem dæmi um áföll sem voru greind í rannsókninni var að verða fyrir ofbeldi (andlegu/líkamlegu/kynferðislegu), vanræksla (líkamleg/tilfinningaleg), heimilisofbeldi, ofneysla áfengis/fíkniefna á heimili, geðröskun fjölskyldumeðlims og skilnaður foreldra.Stjórnvöld bretti upp ermar Kvíði og streita barna er alvarlegri en í fljótu bragði kann að virðast. Barnsheilinn er viðkvæmur fyrir áhrifum streituhormóna sem geta hamlað eðlilegum þroska hans og dregið úr félagslegri, hugrænni og tilfinningalegri getu barnsins. Streitan getur valdið beinum líffræðilegum breytingum en einnig leitt til þess að barnið/unglingurinn tileinkar sér óheilbrigð bjargráð, til dæmis átröskun, reykingar, ótímabært kynlíf eða áfengis- eða fíkniefnaneyslu. Því fleiri áföll í barnæsku því meiri líkur eru á margvíslegum sjúkdómum á fullorðinsaldri, svo sem hjarta- og æðasjúkdómum, þunglyndi, ofneyslu áfengis og/eða fíkniefna, ofbeldissamböndum, sjálfsvígstilraunum og ótímabærum dauðdaga. Skýrsla Ríkisendurskoðunar er í takt við niðurstöður ACE-rannsóknarinnar en þar segir: „Ef ekki er tekið á markvissan hátt á geðheilsuvanda barna og unglinga um leið og hans verður vart aukast til muna líkur þess að þungbærar og langvarandi afleiðingar, jafnvel örorka, komi síðar fram.“ Það þarf ekki mikla reiknifærni til að átta sig á hversu dýrt þetta er samfélaginu en málið snýst ekki eingöngu um peninga. Siðferðilega er óverjandi að segja við börn og unglinga með geðheilsuvanda að við séum of blönk og upptekin til að sinna þeim og þau verði að bíða. Reynslan, rannsóknirnar, skýrslurnar og ályktanirnar eru fyrir löngu búnar að sýna okkur hversu skaðlegt, óskynsamlegt og dýrt það er. Nú verða stjórnvöld að bretta upp ermar og axla ábyrgð, ekki með fleiri orðum, heldur alvöru úrbótum í geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn á öllum aldri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar