Sport

Skilur ekki af hverju Rory MacDonald fær minna borgað en Gunnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
E. Spencer Kyle birtir áhugaverða grein á íþróttavefnum fansided.com þar sem hann bendir á að mikið misræmi er á hversu mikið bardagakappar fá greitt frá UFC-bardagasambandinu.

Í greininni bendir hann á að Kanadamaðurinn Rory MacDonald, einn þekktasti veltivigtarmaðurinn í UFC, hafi aðeins fengið 59 þúsund Bandaríkjadala (7,3 milljónir) fyrir ótrúlegan bardaga sinn gegn Robbie Lawler síðasta sumar.

Þetta sama kvöld barðist Gunnar Nelson við Brandon Thatch og bar sigur úr býtum. Fyrir það fékk hann 58 þúsund Bandaríkjala (7,3 milljónir) fyrir sigurinn. Í desember barðist Gunnar svo við Demian Maia og fékk fyrir það 75 þúsund dollara (9,3 milljónir).

Sjá einnig: Gunnar vann í fyrstu lotu og Conor varð heimsmeistari

„Íslendingurinn er án nokkurs vafa hæfileikaríkur en hann hefur aldrei komist á tíu efstu [á styrkleikalista UFC í veltivigt] og er nú dottinn út af fimmtán efstu. Sigurinn á Thatch er sá stærsti á hans ferli.“

„Það verður að hrósa umboðsmönnum Gunnars fyrir að landa þessum samningi en það gefur líka ákveðið viðmið fyrir næsta samning MacDonald þar sem að hann hefur notið meiri velgengni en Gunni á ferlinum og er nú í efsta sæti styrkleikalistans [á eftir meistaranum, Robbie Lawler].“

Sjá einnig: Gunnar Nelson vill fá að berjast við öflugan Kanadamann

MacDonald mun berjast við Stephen Thompson í júní og er það síðasti bardaginn á núverandi samningi hans við UFC. MacDonald segist afar viljugur að fara aftur út á markaðinn og kanna hvaða aðrir möguleikar eru í boði fyrir hann, fyrir utan UFC.

Kyle segir augljóst að til að sporna við þessari þróun þurfi UFC að borga bardagamönnum sínum í samræmi við þær miklu tekjur sem sambandið hefur af viðburðum sínum, bæði sjónvarpstekjur og af miðasölu. Nú þegar hafi Conor McGregor notið góðs af því og nokkrar aðrar stjörnur, en fleiri þurfi að fá stærri sneið af kökunni.

Smelltu hér til að lesa greinina á fansided.com.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×