Rúnar missir strákinn sinn í marga mánuði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. febrúar 2016 16:00 Myndu/Heimasíða EHV Aue
Íslenski handboltamaðurinn Sigtryggur Daði Rúnarsson verður frá keppni í nokkra mánuði vegna hnémeiðsla og er þetta missir fyrir þýska liðið EHV Aue. Sigtryggur Daði spilar fyrir föður sinn, Rúnar Sigtryggsson, og hefur gert það undanfarin tímabil. Rúnar tók við Aue árið 2012 og sonur hans skipti yfir ári síðar eftir að hafa spilað fyrst fyrir SG Nickelhütte Aue. Sigtryggur meiddist á hægra hné á dögunum og er búist við því að hann verði frá í þrjá mánuði að minnsta kosti. Það er því ólíklegt að hann spili meira með liðinu í vetur. Sigtryggur Daði er 19 ára leikstjórnandi sem hefur skorað 23 mörk í 10 leikjum með EHV Aue í þýsku b-deildinni á tímabilinu. Hann hefur nýtt 50 prósent skota sinna. Hann er þó ekki eini íslenski leikmaður liðsins því þar spila einnig landsliðsmaðurinn Bjarki Már Gunnarsson, skyttan Árni Þór Sigtryggsson og markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson. Fjarvera Sigtryggs Daða næstu mánuði er enn eitt mótlætið sem Rúnar lendir í með liðinu á þessari leiktíð. EHV Aue hefur hækkað sig í töflunni undanfarin tímabil og endaði í sjötta sæti í fyrra. EHV Aue er eins og er í sjötta sætinu með 11 sigra og 7 töp í 21 leik. Þrjú efstu liðin tryggja sér sæti í Bundesligunni og er Aue nú heilum tíu stigum frá þriðja sætinu.
Handbolti Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Körfubolti N1-mótið: Jötunn sem þambar mjólk, frábær tilþrif og orðljótir mótherjar Fótbolti „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Fótbolti Fleiri fréttir „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Sjá meira