Nauðgunarsinni stefnir íslenskum fylgjendum sínum saman Jóhann Óli Eiðsson skrifar 1. febrúar 2016 11:57 Lýsingar Vorek á kynlífsathöfnum eiga það til að lýsa nauðgunum en ekki kynlífi.
Umdeildur bandarískur rithöfundur og „pickup artist“, Roosh Vorek að nafni, hefur stefnt íslenskum fylgjendum sínum saman. Vorek mætir oftar en ekki andstöðu hvert sem hann fer sökum þess hve umdeildar skoðanir hans eru. Hann er annálaður andfemínisti og lýsingar hans á kynlífsathöfnun hans minna margar hverjar heldur á lýsingar á nauðgunum.Stundin greindi fyrst frá samkomu fylgismanna hans hér á landi en fyrirhugað er að hún hefjist á slaginu átta næstkomandi laugardag. 165 fundir eru skipulagðir í 43 löndum næstkomandi laugardag. Ekki hefur verið gefið út hvað verður sagt eða gert á fundinum en frekari upplýsingar eru væntanlegar í vikunni. Sérstaklega er tekið fram að konur og samkynhneigðir séu ekki velkomin á viðburðinn. Að auki er Bandaríkjamaðurinn, en foreldrar hans eru frá Armeníu og Íran, ekki aðdáandi innflytjenda. Á Íslandi er fylgjendum hans bent á að koma að styttunni af Leifi Eiríkssyni við Hallgrímskirkju. Þar eiga þeir að spyrja fólk á staðnum hvort það viti um gæludýrabúð og fá þá frekari upplýsingar um hvað sé í vændum. Reyni einhver hins vegar í raun að vísa þér að gæludýrabúð veit hann ekki hvað sé að gerast og er ekki partur af samkomunni.Ástand rekkjunauta skiptir ekki máli Vorek kom hingað til lands árið 2011 og gaf í kjölfarið út bókina Bang Iceland. Í bókinni ráðleggur hann karlmönnum hvernig þeir eigi að haga sér til að ná að sænga hjá íslensku kvenfólki eftir nótt í miðbæ Reykjavíkur. Þar er meðal annars að finna eftirfarandi lýsingu; „Á leið til herbergis mín áttaði ég mig á því hve ölvuð hún var. Í Bandaríkjunum hefði kynlífið okkar flokkast sem nauðgun þar sem hún var of drukkin til að veita samþykki sitt. Ég var allsgáður en ég get ekki sagt að ég hafi hugsað mig tvisvar um eða hikað.“ Sambærilegar lýsingar má finna í öðrum ritum hans sem og á bloggsíðu sinni. Í bók sinni Bang Poland lýsir hann því meðal annars hvernig það tók hann fjórar klukkustundir og þrjátíu endurtekningar af „nei, Roosh, ekki,“ áður en hann náði að þröngva sér inn í þarlenda konu. Í tilkynningunni segir að Vorek muni mæta á einn viðburðinn af 165 en á Twitter-síðu hans má draga þá ályktun að áströlsk borg hafi orðið fyrir valinu. Hér að neðan má sjá myndband þar sem Vorek ræðir við fylgjendur sína og ver bókina Bang Iceland og þær upplýsingar sem þar koma fram. Þar má meðal annars nefna að íslenskar konur séu afar viljugar og það sé auðveldast að ná þeim heim eftir að skemmtistaðir loka.
Mest lesið Sigmar í veikindaleyfi Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Fleiri fréttir Tveir á vinnupalli sem féll Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Sjá meira