RÚVarar sauma að Eggerti Skúlasyni Jakob Bjarnar skrifar 2. febrúar 2016 16:10 Eggert sagður fara með rangt mál og dylgjur en ritstjórinn gefur sig ekki og harðneitar að biðjast afsökunar á skrifum sínum.
Sunna Valgerðardóttir, fyrrum fréttamaður á fréttastofu RÚV, nú á Kjarnanum, vandar Eggerti Skúlasyni ritstjóra DV ekki kveðjurnar í færslu á Facebooksíðu sinni. Tilefni eru leiðaraskrif Eggerts þar sem hann telur að leiða megi að því líkur að símaviðtal sem Sunna tók við Sigríði Björk Guðjónsdóttur lögreglustjóra í Reykjavík, 22. nóvember 2014, hafi verið að lögreglustjóranum forspurðum, tekið í leyni. „Einkennilegasta dæmið í þessum fjölmiðlafarsa er viðtal sem fréttamaður á Ríkisútvarpinu tók við Sigríði síðasta vetur og var það viðtal hlutdrægt, ósanngjarnt og leiða má líkur að því að viðmælandinn – lögreglustjórinn – hafi ekki áttað sig á að hún væri í viðtali. Svoleiðis gera fréttamenn ekki. Þetta viðtal fékk gamla ljósvakafréttamenn til að roðna vegna vinnubragðanna og að RÚV skyldi yfir höfuð senda þetta út í fréttatíma,” skrifar Eggert í leiðara sinn.Er alveg vonlaust að segja „sorry“?Sunna vísar þessu alfarið á bug og gott betur. Hún segist hafa farið ítarlega yfir viðtalið við lögreglustjóra fyrir birtingu, bæði spurningar og svör. Fjölmargir læka færslu Sunnu, þar af margir fjölmiðlamenn. Eggert svarar á Facebookvegg Sunnu og þá ekki til að biðjast afsökunar á skrifum sínum, nema síður sé: „Já hún er mismikil helgislepjan og ekki sama hver á í hlut. Varst þú Sunna Valgerðardóttir ekki að vinna hjá miðlinum sem spurði mig hvort ég væri framsóknarmaður, þegar ég tók við starfi sem ritstjóri á DV. Það eru náttúrulega ekki dylgjur. Mín upplifun af þessu viðtali sem hlustandi á útvarp, var einföld. Óboðlegt,“ skrifar Eggert kokhraustur og ekki eins og hann sé í kröppum dansi. En, þá og þar með er sem stífla bresti og þolinmæði RÚVara gagnvart Eggerti er úti. Helgi Seljan leggur orð í belg og segir: „Eggert. Ég heiti Helgi Seljan. Hættu að uppnefna mig. Af hverju var viðtalið óboðlegt? Er alveg vonlaust mál að þú segir bara Sorry?“Þverskallast við og neitar að biðjast afsökunar „Kolbeinn Óttarsson Proppé blaðamaður og unnusti Sunnu útskýrir að þetta snúist ekki um upplifun Eggerts. „Þetta er allt gott og blessað, Eggert, eða þannig. Málið er bara að þú ert ekkert að lýsa upplifun þinni í leiðaranum. Þú segir orðrétt: "...og leiða má líkur að því að viðmælandinn – lögreglustjórinn – hafi ekki áttað sig á að hún væri í viðtali." Þetta orðasamband þýðir að færa rök fyrir e-u eða sýna fram á að eitthvað sé líklegt. Það hefur bara nákvæmlega ekkert með upplifunina, sem þú klifar á, að gera. Og nú veistu betur, þú veist að þessi rök sem þú þóttist geta fært fyrir því að lögreglustjórinn hafi ekki áttað sig á því að hann væri í viðtali standast ekki og þú veist að það er ekki líklegt að Sigríður hafi ekki vitað það. Samt þverskallastu við að grafa þig dýpra og dýpra, í staðinn fyrir að standa keikur og segja: Ég hafði rangt fyrir mér.“Frétt sem Eggert segir ómaklegar; þegar hann þurfti að þvo hendur sínar í frétt RÚV, af þeim stimpli að vera sagður Framsóknarmaður.Brynjólfur Þór Guðmundsson fréttamaður hjá RÚV bætir í: „Helgislepja að gera greinarmun á réttu og röngu, Eggert? Það er skrýtið viðhorf hjá ritstjóra. Orð þín í leiðaranum eiga ekkert skylt við viðtalið. Þú dylgjar og ert ber að því að bulla eintóma vitleysu um það sem þú veist ekkert um. Alvöru menn svara ábendingum um slíkt ekki ekki með útúrsnúningum heldur afsökunarbeiðnum.“Hvar er sanngirnin?Og Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttamaður á RÚV spyr: „Átti ekki að innleiða orðið „sanngirni“ á DV með ráðningu nýja ritstjórans?“ og hann vísar í frétt RÚV þar sem Eggert er í viðtali og boðar nýja og breytta hætti á DV, nú þegar hann er kominn við stjórnvölinn. En, Eggert lætur sér ekki segjast: „Það Heiðar Örn Sigurfinnsson er einmitt það sem við höfum gert. Með þessari deilingu þinni ert þú enn á ný að bregðast því hlutverki sem þér hefur verið falið með ráðningu sem ríkisfjölmiðlamaður. Stendur þetta orð eitthvað í ykkur kannski?“ Og Heiðar Örn svarar: „Ég er annars vegar búinn að deila fréttinni sem þú kallaðir dylgjur hér að ofan. Nú getur hver og einn lesið fréttina og velt því fyrir sér hvort þar sé um dylgjur af hálfu RÚV að ræða eða ekki. En það er aukaatriði. Aðalatriðið er, hins vegar, leiðarinn sem þú skrifaðir og sakaðir kollega um óverjandi vinnubrögð - án þess þó að hafa nokkra forsendu fyrir því. Það finnst mér ekki vera í anda þeirrar sanngirni sem mér skildist að ætti að innleiða í ritstjórnarstefnuna.“ En, Eggert gefur sig ekki, engin afsökunarbeiðni er í boði frá ritstjóranum sem segir „Þetta eru merkilegar umræður og gaman að sjá hverjir tjá sig hér og með hvaða hætti.“Eggert Skúlason, ritstjóri DV, ber mig ansi þungum sökum í leiðara sínum í dag. Leiðarinn ber heitið 'Hún eða þeir” og...Posted by Sunna Valgerðardóttir on 2. febrúar 2016
Mest lesið Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Enn besta lausnin að kaupa Grænland Erlent Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Mætti ekki í útför föður síns Erlent Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Fleiri fréttir Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent