Réðst á verðandi eiginkonu sína fyrir framan barnungar dætur hennar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. febrúar 2016 15:08 Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi. Myndin er sviðsett. Vísir/Getty
Karlmaður á Austurlandi hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á fyrrverandi sambýliskonu sína, sem nú er eiginkona hans, á heimili þeirra að viðstöddum dætrum ákærðu. Ákæra var gefin út á hendur manninum af lögreglustjóranum á Austurlandi í desember en manninum var gefið að sök að hafa slegið konuna nokkur högg með flötum lófa í fæturna þar sem hún lá á dýnu á gólfinu og svo slegið hana tveimur hnefahöggum og einu höggi með flötum lófa í höfuðið en þá lá hún í rúmi í svefnherberginu. Líkamlegar afleiðingarnar voru þær að konan hlaut kúlu á hægra gagnauga, mar á hægri kjálka, bólgu og mar á hægri sköflung, mar og eymsli á hægri úlnlið og bólgu og mar á vinstri vísafingur. Maðurinn játaði brot sitt skýlaust fyrir dómi.Bar við afbrýðissemi án frekari útskýringa Í ákærunni kemur fram að dætur konunnar á barnsaldri hafi orðið vitni að líkamsárásinni. Maðurinn var ölvaður og neitaði því ekki að hafa ráðist á konuna þótt hann bæri við minnisleysi sökum ölvunar. Hann kvaðst muna eftir því að hafa eyðilagt sjónvarp á heimilinu og bar við afbrýðissemi án þess að gefa frekari skýringar á því. Við þingfestingu málsins mætti ákærði í fylgd konunnar og upplýstu þau að þau hefðu nýlega gengið í hjúskap. Þau höfðu verið í sambúð þegar maðurinn réðst á konuna.Í dómi Héraðsdóms Austurlands segir að maðurinn hafi ekki áður gerst sekur um refsivert brot. Við ákvöðun refsingar hafi einkum verið litið til þess að brotið var framið á heimili þeirra, í viðurvist barnungra dætra hennar. Svo virðist sem hún hafi verið af litlu sem engu tilefni. Þá segir að sú staðreynd að þau hafi gift sig síðan árásin átti sér stað breyti engu um ákvörðun refsingarinnar.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Sjá meira