Sýknudómur í nauðgunarmáli stendur óbreyttur Bjarki Ármannsson skrifar 4. febrúar 2016 17:06 Manninum var gert að sök að hafa haft samræði og endaþarmsmök við stúlkuna og notfært sér ölvun hennar og svefndrunga til þess. Vísir/Getty
Sýknudómur Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem ákærður var fyrir nauðgun á sextán ára stúlku árið 2011 skal vera óraskaður. Þann úrskurð kvað Hæstiréttur upp í dag. Manninum var gert að sök að hafa haft samræði og endaþarmsmök við stúlkuna og notfært sér ölvun hennar og svefndrunga til þess. Héraðsdómur taldi á sínum tíma ekki hafið yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hefði nauðgað stúlkunni, meðal annars vegna ósamræmis í framburði konunnar og í ljósi þess að þau eru ein til frásagnar um atburðina, en einn dómari skilaði sératkvæði og taldi að sakfella ætti manninn. Í dómi Hæstaréttar frá því í dag segir að Hæstiréttur geti ekki endurmetið niðurstöðu héraðsdóms um sönnunargildi munnlegs framburðar nema hlutaðeigandi vitni eða ákærði gæfu skýrslu þar fyrir dómi. Þá taldi dómstóllinn engin önnur gögn málsins benda til þess að niðurstaða héraðsdóms um framburðinn fyrir dómi kynni að vera röng svo að einhverju skipti.Segist hafa vaknað í alblóðugum nærbuxum Ákæran snýr að atburðum aðfaranætur sunnudagsins 11. september 2011. Konan sem þá var sextán ára, Elísabet Segler, sagði sína hlið sögunnar í pistli sem birtist meðal annars á Vísi árið 2014. Elísabet segist hafa farið heim með manninum af skemmtistaðnum Prikinu og næst muna eftir sér í íbúð hans þar sem hann hafi verið ofan á henni og ýtt höfði hennar niður. Hún segir að síðast er hún vaknaði hafi kjóll hennar verið tekinn niður fyrir brjóst, sokkabuxur hennar rifnar og nærbuxurnar alblóðugar. Maðurinn hafi sagt að hún „mætti fara núna“ og hún hafi þá hlaupið út. Hún leitaði til Neyðarmóttöku daginn eftir og skýrsla frá 12. september greinir frá áverkum hennar. Hún lagði ekki fram ákæru fyrr en í janúar 2013, sextán mánuðum eftir atvikið. Gaf hún þá skýringu fyrir héraðsdómi að hún hefði viljað „loka á þetta“ og að hún hafi síðar frétt að maðurinn hefði nauðgað öðrum stúlkum. Hún hafi þá fengið samviskubit og ákveðið að kæra. Maðurinn segist hafa farið heim með konunni af Prikinu en að ekkert kynferðislegt hafi átt sér stað á milli þeirra. Hún hafi „algjörlega rotast“ og hann ekki getað vakið hana. Hann hafi svo sjálfur sofnað og vaknað þegar hún yfirgaf íbúðina daginn eftir.
Tengdar fréttir „Nauðgarinn sleit meyjarhaftið mitt“ „Það eina sem nauðgarinn gat sagt við mig var „Þú mátt fara núna,” segir Elísabet Segler. 3. október 2014 21:57 Dómarar ósammála: Sýknaður af ákæru um að nauðga 16 ára stúlku Í ákæru er greint frá því að konan var með mikla áverka sem hún sagði tilkomna eftir kynmök við manninn. 3. mars 2015 00:06 Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira
„Nauðgarinn sleit meyjarhaftið mitt“ „Það eina sem nauðgarinn gat sagt við mig var „Þú mátt fara núna,” segir Elísabet Segler. 3. október 2014 21:57
Dómarar ósammála: Sýknaður af ákæru um að nauðga 16 ára stúlku Í ákæru er greint frá því að konan var með mikla áverka sem hún sagði tilkomna eftir kynmök við manninn. 3. mars 2015 00:06