Íslenska ríkið sýknað af 29 milljóna kröfu ekkju Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. febrúar 2016 14:52 Íslenska ríkið var sýknað af 29 milljóna króna bótakröfu. vísir/gva
Íslenska ríkið hefur verið sýknað af rúmlega 29 milljóna króna bótakröfu ekkju manns sem lést í október 2011. Taldi konan að starfsmenn á Landspítalanum hefðu sýnt af sér stórfellt gáleysi og þá einkum ónefndur skurðlæknir. Með háttsemi sinni hefði hann orsakað mistök sem leiddu til dauða eiginmanns hennar. Vegna dauða hans hefði hún orðið fyrir beinu fjártjóni og miska en í stefnunni var fullyrt starfsmenn spítalans hefðu sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi. Maðurinn leitaði á slysa- og bráðadeild Landspítalans þann 28. september 2011 vegna kviðverkja og ógleði og var lagður inn á meltingar- og nýrnadeild sjúkrahússins. Eftir tíu daga innlögn og meðferð á sjúkrahúsinu var hann útskrifaður þann 7. október. Sama dag hneig hann niður á heimili sínu og komst ekki til meðvitunar á ný. Hann var úrskurðaður látinn sex dögum síðar. Í niðurstöðu dómsins segir að að frátöldum tveimur þáttum hafi maðurinn fengið viðeigandi læknismeðferð þann tíma sem hann dvaldist á sjúkrahúsinu. Var fallist á það með íslenska ríkinu að skilyrði bótareglna um orsakatengsl væru ekki fyrir hendi. Var ríkið því sýknað af kröfum ekkjunnar en hvor aðili þurfti að bera sinn kostnað af málinu. Ragnheiður Harðardóttir héraðsdómari kveður upp dóminn ásamt meðdómsmönnunum Nicholas J. Cariglia, sérfræðingi í lyf- og meltingarlækningum, og Þórði Ægi Bjarnasyni, sérfræðingi í skurðlækningum. Dóminn í heild má lesa hér.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Sjá meira