Fasteignamat í gamla Vesturbænum hækkar um allt að 30 prósent Heimir Már Pétursson skrifar 9. febrúar 2016 19:15
Íbúðaverð í hluta Vesturbæjar Reykjavíkur hefur hækkað um allt að 30 prósent frá því í fyrra miðað við fasteignamat þessa árs. Mikil eftirspurn og breytingar á hverfinu hafa hækkað fermetraverðið sem er komið yfir 500 þúsund krónur í dýrustu eignunum. Á undanförnum fimm til tíu árum hafa átt sér stað miklar breytingar á hverfinu við og fyrir ofan gömlu höfnina. Icelandair hóf þar nýlega rekstur á stóru hóteli og mikill fjöldi veitingastaða hefur opnað á svæðinu á undanförnum árum. Þetta hefur haft sín áhrif á fasteignamatið og fasteignaverðið. Fasteignamat á íbúðarhúsnæði fyrir þetta ár hækkar vel yfir meðaltalinu, eða um 12,7 prósent vestan Bræðraborgarstígs, 10,8 prósent frá Tjörninni að Snorrabraut en um 16,9 prósent frá Bræðraborgarstíg að Tjörninni. Ingi Finnsson, sviðsstjóri mats- og hagsviðs Þjóðskrár, segir íbúðaverð því að meðaltali að hækka mest í gamla Vesturbænum ofan við gömlu höfnina.Er algengt að svo mikil hækkun eigi sér stað á fasteignamatinu á milli ár?„Nei, þetta hverfi sker sig úr hvað þetta varðar. Flest önnur hverfi eru nær meðaltalinu á höfuðborgarsvæðinu sem er átta prósent,“ segir Ingi.Fasteignamatið og um leið verðið hækkar mest eftir því sem nær dregur miðborginni og eru hækkanir um eða yfir 10 prósentum í Þingholtum, Melum, Högum og í Skerjafirði. Meðaltalshækkun á hverju matssvæði segir þó ekki alla söguna, þvi einstakar eignir innan hvers svæðis geta hækkað enn meira og sumar eitthvað minna. „Jú, það er svolítið misjafnt eftir eignaflokkum. Það getur verið mismunandi hækkun á fjölbýli og sérbýli. Eins geta einstakar eignir verið að hækka örlítið meira. Það getur jafnvel verið 30 prósenta hækkun í þessu hverfi þótt það sé ekki algengt,“ segir Ingi. Önnur hverfi eru líka vinsæl. Hækkanir eru hins vegar minnstar í Réttarholti, Bústaðahverfi og Kjalarnesi og lækkar beinlínis um eitt prósent í Blesugróf. Fyrir innan við áratug var gamli Vesturbærinn notarlegt og fremur rólegt íbúðahverfi í nágrenni miðborgarinnar en nú má segja að það sé hluti hennar og teygi sig alla leið út á Granda og þar er eftirspurnin mikil eftir húsnæði. „Það má segja það. Það er náttúrlega mikil uppbygging og þetta er það svæði sem hefur verið að hækka mest á undanförnum árum,“ segir Ingi Finnsson.
Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Pútín sló öll met Erlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Erlent Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent Fleiri fréttir Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Sjá meira