Rut Jónsdóttir, landsliðskona í handbolta, og stöllur hennar í danska úrvalsdeildarliðinu Randers unnu góðan og mikilvægan sigur í kvöld.
Randers, sem var í sjötta sæti fyrir leikinn í kvöld, mætti Nyköbing sem var tveimur sætum ofar og vann stórsigur á útivelli, 34-24.
Gestirnir voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 15-12, en juku við forskotið jafnt og þétt í síðari hálfleik og unnu á endanum glæsilegan tíu marka sigur.
Rut hafði hægt um sig í leiknum og skoraði eitt mark úr tveimur skotum, en Camilla Dalby var markahæst hjá Randers með tíu mörk.
Randers var fyrir leikinn án sigurs í tveimur leikjum í röð í deildinni en er nú komið aftur á sigurbraut.
Liðið er nú með 16 stig eftir 14 umferðir og lyfti sér upp í fjórða sætið, upp fyrir Nyköbing með sigrinum í kvöld.
