Innlent

Vilja 150 milljónir og níu lóðir í skiptum fyrir jarðir á Arnarnesi

Ingvar Haraldsson skrifar
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ.
Landeigendurnir á Arnarnesi vilja fá 150 milljóna króna peningagreiðslu auk níu lóða í fyrirhugaðri byggð í Hnoðraholti í Garðabæ í skiptum fyrir fjögur svæði á Arnarnesi. Garðabær segist tilbúinn að greiða 50 milljónir fyrir lóðirnar.

Landeigendurnir fóru fram á að Garðabær afhenti fjölbýlishúsalóð fyrir 12 íbúða fjölbýli, fjórar raðhúsa- eða parhúsalóðir og fjórar einbýlishúsalóðir. Bæjarráð Garðabæjar hafnaði tilboðinu og bókaði að í því fælist verulegt frávik frá þeim hugmyndum sem Garðabær hefur kynnt til lausnar í málinu.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir að meta mætti lóðirnar sem landeigendur vildu fá í skiptum að lágmarki á 150 milljónir króna og tilboðið í heild á 300 milljónir króna. Upphæðin væri sexfalt hærri en það sem Garðabær teldi sanngjarnt og því hafi tilboði landeigendanna verið hafnað með svo skýrum hætti.

Gunnar segir málið hafa komið upp í kjölfar breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar á árunum 2011 og 2012. Verslunarlóðum í eigu landeigenda við Hegranes og Æðarnes hefði verið breytt í íbúðarlóðir auk þess að ágreiningur sé milli bæjarins og landeigenda um eignarhald á Háholti. Þá vilji landeigendur að bærinn kaupi fjöruna á norðanverðu Arnarnesi. „Garðabær telur sér ekki skylt að kaupa fjöruna nema einhverjir sérstakir hagsmunir séu fólgnir í því að bærinn eignist fjöru.“

Viðræður við landeigendur muni því halda áfram að sögn bæjarstjórans. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×