Starfsmenn Vodafone þurftu að flýja myglusvepp Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. janúar 2016 09:51 Frá höfuðstöðvum Vodafone í Skútuvogi. Vísir/Daníel
Myglusveppur gerði starfsfólki í þjónustuveri Vodafone við Skútuvog lífið leitt síðari hluta árs 2015. Þurfti meðal annars að flytja heilt símaver í annað húsnæði skömmu fyrir jól og er þjónustuverið nú tímabundið rekið á tveimur stöðum. Einhverjir starfsmenn fundu fyrir einkennum vegna vandans segir Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Vodafone. Hún segir að grunur hafi kviknað um eitthvað óeðlilegt í húsnæðinu seinni hluta liðins árs og strax hafi verið ráðist í að rannsaka málið í samstarfi við sérfræðinga og leigusalann. Í kjölfarið hafi verið farið í viðgerðir. Gunnhildur segir um að ræða afmarkað svæði á jarðhæð hússins í Skútuvogi.Sjá einnig: Þolendur bera einir kostnaðinnMyglusveppur verður oft vegna rakaskemmda sem ekki er brugðist nógu hratt við með viðeigandi framkvæmdum.„Þegar ljóst var að frekari viðgerða var þörf á húsnæðinu var ákveðið að taka enga sénsa varðandi heilsu starfsmanna og flytja þá sem staðsettir voru á þessu tiltekna svæði, sem er einkum sölu- og þjónustusvið félagsins, tímabundið í annað húsnæði,“ segir Gunnhildur í skriflegu svari til fréttastofu. Nú sé því hluti þjónustuversins rekinn í Skútuvogi en hluti í Ármúla þar sem MP banki var áður til húsa. Gunnhildur segir alla hafa lagst á eitt til að flutningurinn gengi sem snuðrulausast fyrir og ættu starfsmenn þar mikið hrós skilið.Sjá einnig: Í einangrun í sumarbústað vegna myglusveppsMygla í íbúðarhúsnæði. Mynd úr safni.„Má t.a.m. nefna að opnunartími þjónustuvers, sem er á meðal þeirra eininga sem voru fluttar, hélst óskertur þrátt fyrir að flytja þyrfti heilt símaver með tilheyrandi tækjum og tengingum, og það rétt fyrir jól. Sú helgi var einstaklega vel nýtt.“ Gunnhildur segir að því starfsfólki sem hafi fundið til einkenna hafi verið boðin læknisskoðun og fleira slíkt. Flutningarnir hafi þó ekki haft nein áhrif á þjónustuna. „Allir hafa lagst á eitt hér um að starfsemin haldi fullum dampi og hvergi sé slakað á þjónustunni. Starfsmenn hafa sýnt mikið umburðarlyndi og skilning og eiga stórt hrós skilið. Við erum jú, tímabundið á tveimur stöðum, en vinnum með það og gengur vel.“Sjá einnig: „Sonur minn er ekki tilraunadýr“ Myglusveppur hefur fundist víða í höfuðborginni undanfarin misseri. Starfsmenn í ráðuneytum, starfsfólk á BUGL, starfsfólk á Landspítalanum, félagsmiðstöðum og víðar hafa veikst af þessum sökum og þurft hefur að grípa til ráðstafana til að vinna bug á vandamálinu. Vandamálið er þó ekki síður algengt í heimahúsum en Fréttablaðið fjallaði ítarlega um myglusveppavandamál bæði á vinnustöðu og heimilum síðastliðið haust. Umfjöllun má sjá hér að neðan.
Tengdar fréttir Leigusalar fela myglusvepp Fjölmörg dæmi eru um leigjendur sem hrekjast út úr íbúðum vegna veikinda af völdum myglusvepps. Framkvæmdastjóri Leigusamtakanna segir sárlega skorta eftirlit með leigumarkaðnum. 11. september 2015 07:00 Var farin að halda að barnið væri greindarskert Fjölskylda sem bjó á Ásbrú fór í mál við leigufélagið vegna myglusvepps. Á átta mánuðum hrakaði heilsu ungbarns verulega þannig að það lét á sjá. 26. september 2015 07:00 Vel vitað að vinsæl einangrun veldur myglu: „Getum ekki bannað vissa aðferð“ Verkfræðingur segir vel vitað að ákveðin einangrunaraðferð bjóði myglu heim. Ekki hægt að stöðva slíkt, segir forstjóri Mannvirkjastofnunar. 7. október 2015 07:00 Tugir á kynningarfundi um myglusvepp: „Ómetanlegt að finna stuðning" „En íbúar geta haft mikil áhrif, lifnaðarhættir íbúa skipta máli,” útskýrði Sylgja Dögg í ítarlegu erindi um myglusvepp, áhrif hans, veikindi af hans völdum og rétt viðbrögð. 2. júní 2015 23:42 Þolendur myglusvepps bera einir kostnaðinn Mörg dæmi eru um að fjölskyldur missi allar sínar eigur vegna myglusvepps. 24. september 2015 07:00 Í einangrun í sumarbústað vegna myglusvepps Birgitta Braun getur ekki lifað eðlilegu lífi vegna myglusveppaveikinda. Hún er ein af mörgum sem eiga við alvarlegan heilsubrest að stríða en mæta skilningsleysi og ráðaleysi lækna. 1. október 2015 07:00 Myglusveppur herjar á starfsmenn BUGL Líkur eru á að færa þurfi starfsemi BUGL í annað húsnæði vegna gruns um myglusvepp. Sveppur fannst í eldri byggingu deildarinnar í sumar, og nú í þeirri nýju. 11. nóvember 2015 14:37 „Við viljum ekki vera vont fólk“ Páll Winkel segir að Íslendingar megi skammast sín fyrir ástand fangelsismála. Myglusveppir og hriplekt þak er meðal þess sem fangar og fangaverðir í Hegningarhúsinu mega búa við, í miklum þrengslum. 8. nóvember 2015 20:00 Myglusveppurinn sendi konu á leið í þríþraut í rúmið „Ég veikist og veikist áfram þangað til að ég get eiginlega ekki hreyft mig,” sagði Guðbjörg Matthíasdóttir, þolandi myglusvepps á kynningarfundi GRÓ í gærkvöldi. 3. júní 2015 17:00 Fá tæpar 1,2 milljónir króna vegna myglu í leiguíbúð Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Háskólagarða ehf. til þess að endurgreiða fyrrverandi leigjendum leigu sem þau höfðu greitt vegna myglu sem greindist í húsnæðinu eftir að leigjendurnir fluttu inn. 12. október 2015 15:17 Myglusveppaþolendur hraktir úr vinnu Þeir sem veikjast vegna myglusvepps á vinnustað hafa lítil sem engin réttindi þegar það kemur að fjárhagstapi, heilsutjóni eða atvinnuöryggi. 5. október 2015 07:00 Á batavegi eftir myglusvepp: „Það skiptir máli að vera jákvæður“ Tómas Guðbjartsson veiktist vegna myglu á Landspítalanum. Hann vill að líffræði myglusvepps og áhrif hans verði kennd við læknadeild. 5. júní 2015 14:00 Mistök skýra myglu Starfshópur ráðherra er harðorður í skýrslu. 18. apríl 2015 12:00 Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Nýr eigandi tekur við og skötuunnendur geta andað léttar Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira
Leigusalar fela myglusvepp Fjölmörg dæmi eru um leigjendur sem hrekjast út úr íbúðum vegna veikinda af völdum myglusvepps. Framkvæmdastjóri Leigusamtakanna segir sárlega skorta eftirlit með leigumarkaðnum. 11. september 2015 07:00
Var farin að halda að barnið væri greindarskert Fjölskylda sem bjó á Ásbrú fór í mál við leigufélagið vegna myglusvepps. Á átta mánuðum hrakaði heilsu ungbarns verulega þannig að það lét á sjá. 26. september 2015 07:00
Vel vitað að vinsæl einangrun veldur myglu: „Getum ekki bannað vissa aðferð“ Verkfræðingur segir vel vitað að ákveðin einangrunaraðferð bjóði myglu heim. Ekki hægt að stöðva slíkt, segir forstjóri Mannvirkjastofnunar. 7. október 2015 07:00
Tugir á kynningarfundi um myglusvepp: „Ómetanlegt að finna stuðning" „En íbúar geta haft mikil áhrif, lifnaðarhættir íbúa skipta máli,” útskýrði Sylgja Dögg í ítarlegu erindi um myglusvepp, áhrif hans, veikindi af hans völdum og rétt viðbrögð. 2. júní 2015 23:42
Þolendur myglusvepps bera einir kostnaðinn Mörg dæmi eru um að fjölskyldur missi allar sínar eigur vegna myglusvepps. 24. september 2015 07:00
Í einangrun í sumarbústað vegna myglusvepps Birgitta Braun getur ekki lifað eðlilegu lífi vegna myglusveppaveikinda. Hún er ein af mörgum sem eiga við alvarlegan heilsubrest að stríða en mæta skilningsleysi og ráðaleysi lækna. 1. október 2015 07:00
Myglusveppur herjar á starfsmenn BUGL Líkur eru á að færa þurfi starfsemi BUGL í annað húsnæði vegna gruns um myglusvepp. Sveppur fannst í eldri byggingu deildarinnar í sumar, og nú í þeirri nýju. 11. nóvember 2015 14:37
„Við viljum ekki vera vont fólk“ Páll Winkel segir að Íslendingar megi skammast sín fyrir ástand fangelsismála. Myglusveppir og hriplekt þak er meðal þess sem fangar og fangaverðir í Hegningarhúsinu mega búa við, í miklum þrengslum. 8. nóvember 2015 20:00
Myglusveppurinn sendi konu á leið í þríþraut í rúmið „Ég veikist og veikist áfram þangað til að ég get eiginlega ekki hreyft mig,” sagði Guðbjörg Matthíasdóttir, þolandi myglusvepps á kynningarfundi GRÓ í gærkvöldi. 3. júní 2015 17:00
Fá tæpar 1,2 milljónir króna vegna myglu í leiguíbúð Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Háskólagarða ehf. til þess að endurgreiða fyrrverandi leigjendum leigu sem þau höfðu greitt vegna myglu sem greindist í húsnæðinu eftir að leigjendurnir fluttu inn. 12. október 2015 15:17
Myglusveppaþolendur hraktir úr vinnu Þeir sem veikjast vegna myglusvepps á vinnustað hafa lítil sem engin réttindi þegar það kemur að fjárhagstapi, heilsutjóni eða atvinnuöryggi. 5. október 2015 07:00
Á batavegi eftir myglusvepp: „Það skiptir máli að vera jákvæður“ Tómas Guðbjartsson veiktist vegna myglu á Landspítalanum. Hann vill að líffræði myglusvepps og áhrif hans verði kennd við læknadeild. 5. júní 2015 14:00