Alfreð vann kapphlaupið um Nilsson Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. janúar 2016 11:05 Lukas Nilsson í leiknum gegn Þýskalandi í gær. Vísir/AFP
Alfreð Gíslason hefur klófest hina stórefnilegu skyttu Lukas Nilsson en mikið kapphlaup hefur verið á milli stærstu félaga Evrópu um sænska landsliðsmanninn, sem er aðeins nítján ára. Nilsson skrifaði undir þriggja ára samning við Kiel og mun ganga til liðs við félagið nú í sumar. Nilsson er rétthent skytta, rétt eins og Aron Pálmarsson sem fór frá Kiel til Veszprem fyrir núverandi tímabil. „Lukas er með einstaka hæfileika. Hann er marksækinn og með góðan leikskilning þrátt fyrir ungan aldur. Hann er mjög öruggur í vörninni,“ sagði Alfreð í viðtali á heimasíðu Kiel. „Ég er afar ánægður að Lukas sjái framtíð sína í Kiel.“ „Öll bestu lið Evrópu voru með nafn hans á blaði hjá sér. Við lögðum okkur mikið fram til að fá hann til að geta aukið breiddina í leikmannahópi okkar,“ sagði Thorsten Storm, framkvæmdastjóri félagsins. Nilsson er 1,92 m á hæð og fæddur árið 1996. Hann leikur með Ystad í heimalandinu og spilaði sinn fyrsta leik í sænsku úrvalsdeildinni sautján ára. Hann er nú markahæsti leikmaður sænsku úrvalsdeildarinnar og spilaði sinn fyrsta landsleik í nóvember. Hann er í stóru hlutverki með sænska landsliðinu á EM í handbolta og tók til að mynda lokaskotið í leik Svía og Þjóðverja í gær. Það fór yfir markið og Þjóðverjar fögnuðu eins marks sigri. Fjölmargir af bestu handknattleiksmönnum Svía hafa spilað með Kiel í gegnum tíðina. Meðal þeirra má nefna Magnus Wislander, Marcus Ahlm, Kim Andersson og Stefan Lövgren.
Handbolti Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Fótbolti Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Körfubolti Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Sjá meira