Innlent

Fannst meðvitundarlaus við hringtorg í Kópavogi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ökumaður vélsleðans var fluttur á slysadeild
Ökumaður vélsleðans var fluttur á slysadeild vísir/gva
Um klukkan 8 í morgun var tilkynnt um meðvitundarlausan mann sem lá við hringtorg í Kópavogi. Fljótlega kom í ljós að maðurinn hafði verið að aka vélsleða sem hafði líklega oltið en 10 ára gamall sonur mannsins var með honum á vélsleðanum.

Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en dregnurinn hafði ekki slasast og var komin í umsjá móður sinnar sem einnig var komin á vettvang, að því er segir í dagbók lögreglu. Feðgarnir höfðu hvorugir verið með hjálm á vélsleðanum.

Bannað er að aka torfærutækjum á borð við vélsleða innan bæjar en ökumaðurinn var réttindalaus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×