Kostnaður við sérkennslu margfaldast Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 4. febrúar 2016 07:00 Spara þarf á leikskólum borgarinnar, fyrst og fremst í sérkennslu og stuðningi. vísir/stefán
Skera á niður áttatíu milljónir til stuðnings og sérkennslu í leikskólum á árinu. Er þetta liður í hagræðingaaðgerðum Reykjavíkurborgar. Leikskólastjórar hafa gagnrýnt niðurskurðinn enda skjóti skökku við að spara í sérkennslu þegar sífellt fleiri börn þurfi aðstoð. Einnig að búið sé að skera niður að beini í leikskólum borgarinnar.Skúli Helgason.Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs, segir gríðarlegan vöxt útgjalda til sérkennslu eina ástæðu þess að endurskoða þurfi fyrirkomulagið. Frá árinu 2009 hafi kostnaður við sérkennslu aukist um 800 milljónir króna, farið úr 300 milljónum í ellefu hundruð milljónir. Sparað verður í sérkennslu barna með vægari raskanir, svo sem málþroska- og hegðunarraskanir. Skipulag þjónustunnar breytist og áherslan verður á virka ráðgjöf og handleiðslu sérfræðinga við starfsfólk leikskóla, eins og gert hefur verið með hegðunarráðgjöf. Skúli tekur börn með erlendan bakgrunn sem dæmi en greiningar á málþroskaröskunum hafa tvöfaldast á síðustu árum. Árið 2012 greindust 124 börn með röskunina en árið 2014 voru þau tvö hundruð.„Annað hvert barn sem er sent í greiningu vegna málþroskaröskunar er af erlendum uppruna. Við getum minnkað áherslu á greiningar sem eru dýrar og tímafrekar og einbeitt okkur að því að auka málörvun og þjálfun á leikskólanum – án sérstakrar greiningar. Við þurfum ekki flóknar greiningar til þess að vita að barn af erlendum uppruna þurfi stuðning í íslensku.“ Greiningar leikskólabarna hafa almennt aukist mjög og þar af leiðandi sérkennsla og stuðningur á leikskólum. Nær tvöfalt fleiri börn voru með greiningu á leikskólum Reykjavíkur árið 2014 en árið 2009. „Við viljum skoða þessa aukningu á greiningum. Hvort það séu alltaf eðlilegar ástæður að baki eða hvort þær séu hugsanlega afleiðing af því hvernig kerfið okkar er byggt upp. Því ef barn er komið með greiningu fylgir því fjármagn. Þannig myndast hvati í kerfinu að senda börn í dýrar greiningar. Við viljum draga úr þessari greiningamiðun en tryggja betur að úrræðin séu markviss og skili sér í stöðugum framförum barnanna,“ segir Skúli.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Sjá meira