Salvör vill kæra fjölmiðla fyrir að segja af Facebookfærslu hennar Jakob Bjarnar skrifar 21. nóvember 2016 10:49 Salvör telur að fjölmiðlar hafi brotið á sér vegna umfjöllunar um skrif hennar á Facebook. visir/anton brink
Salvör Kristjana Gissurardóttir, lektor í upplýsingatækni við HÍ, kannar nú réttarstöðu sína með það fyrir augum að kæra fjölmiðla fyrir að fjalla um gríðarlega umdeild skrif hennar á Facebook um helgina. Facebook telst opinber vettvangur. Fréttastofa ræddi við Salvöru í seint í gærkvöldi og í morgun, en í máli hennar kom fram að hún væri nú að kanna stöðu sína. Og hún væri afar ósátt við að fjölmiðlar hafi fjallað um málið og hinn mikla ágreining sem braust út. Þeir fjölmiðlar sem hafa greint frá málinu eru Vísir og DV. Salvör fór þess á leit við Vísi að fréttin væri tekin úr birtingu. Við því var ekki orðið. Í gærkvöldi ritaði Salvör svohljóðandi fyrirspurn inn á Facebookhóp sem heitir Fjölmiðlanördar, hópur áhugafólks um fjölmiðla og spurði: „Er einhvers staðar síða um siðareglur og lagaumgjörð varðandi fjölmiðla á Íslandi og hvað maður gerir ef maður telur brotið á sér af fjölmiðlum?“Maðurinn á listmannalaununum Þannig má ljóst vera að Salvör telur að á sér hafi verið brotið. Sem áður segir skrifaði Salvör gríðarlega umdeilda klausu þar sem hún lagði út af viðtali sem birtist í söfnunarþætti Stígamóta og Stöðvar 2. Þar greindi kona frá því að hún hafi átt í ofbeldisfullu sambandi, maðurinn vildi að hún gerði eitt og annað sem særði blygðunarkennd hennar. Það fylgdi sögunni að viðkomandi maður væri á listmannalaunum og hefði þar af leiðandi rúman tíma til að atast í henni. Þá stendur eftir, miðað við aðrar vísbendingar, að til þess að gera þröngur hópur manna kemur til greina. Salvör taldi vert að nafngreina manninn. Salvör fullyrti ekki um það en lætur að því liggja að viðkomandi maður sé Steinar Bragi rithöfundur, en Salvör vísaði í umfjöllunarefni bóka hans í því sambandi.Tók færsluna niður eftir ítrekaðar áskoranir Fjölmargir, einkum úr bókmenntaheiminum, furðuðu sig á þessu og höfðu uppi stór orð um hversu ósmekklegt og hæpið það væri að kenna Steinar Braga við þennan gjörning. Þórarinn Leifsson rithöfundur færði þau skilaboð inn á athugsemdakerfi Facebook-síðu Salvarar að Steinar Bragi væri kominn með lögmann í málið. Var ítrekað skorað á Salvöru að taka þessar ávirðingar niður; krafa sem hún varð svo á endanum við seint í gærkvöldi. Það var eftir að hafa breytt færslunni með semingi og tekið út nafn Steinars Braga. Í uppfærði frétt Vísis af því máli öllu kemur fram að Salvör hafi í gærkvöldi haft samband við Steinar Braga og beðið hann afsökunar á umræddri Facebookfærslu. Og þar stendur málið núna.
Tengdar fréttir Steinar Bragi vill gefa Salvöru færi á að biðjast afsökunar Fjölmargir úr bókmenntaheiminum hafa skorað á lektorinn að taka færsluna niður. 20. nóvember 2016 18:16 Leiddist út í vændi eftir gróft kynferðisofbeldi: Átti að nota kattakassa Eva Dís Þórðardóttir leiddist út í vændi eftir að hafa orðið fyrir grófu kynferðisofbeldi allt frá barnsaldri. 18. nóvember 2016 22:13 Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Sjá meira
Steinar Bragi vill gefa Salvöru færi á að biðjast afsökunar Fjölmargir úr bókmenntaheiminum hafa skorað á lektorinn að taka færsluna niður. 20. nóvember 2016 18:16
Leiddist út í vændi eftir gróft kynferðisofbeldi: Átti að nota kattakassa Eva Dís Þórðardóttir leiddist út í vændi eftir að hafa orðið fyrir grófu kynferðisofbeldi allt frá barnsaldri. 18. nóvember 2016 22:13