Mikill meirihluti notað farsíma undir stýri síðustu tólf mánuði Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 21. nóvember 2016 16:08 Ökumenn eru ekki spurðir hvort farsími hafi komið við sögu eftir að slys á sér stað. Vísir/Vilhelm
Nýleg könnun MMR sýnir að fjórir af hverjum fimm Íslendingum hafa notað farsíma undir stýri síðastliðna tólf mánuði.Samkvæmt könnun MMR hafa 79 prósent Íslendinga notað síma undir stýri síðastliðna tólf mánuði. Könnunin sýndi þó að fjöldi þeirra sem tala í símann án handfrjáls búnaðar hefur minnkað stöðugt síðan árið 2010 og farið úr 71 prósent árið 2010 í 64 prósent árið 2014 og mældist nú árið 2016 56 prósent. Aftur á móti hefur fjöldi þeirra sem tala í símann undir stýri með handfrjálsum búnaði hefur stóraukist úr 24 prósent árið 2014 í 39 prósent árið 2016. 23 prósent svarenda sögðust hafa notað farsíma undir stýri til þess að skrifa eða lesa tölvupóst, sms eða önnur skilaboð á síðastliðnum tólf mánuðum. Þar að auki sögðust tólf prósent svarenda sögðust hafa notað farsíma undir stýri til þess að taka mynd, tólf prósent til þess að fara á internetið og tvö prósent til þess að spila tölvuleik. Eldri aldurshópar voru mun ólíklegri til að nota síma undir stýri. Þannig sögðust 57 prósent þeirra sem voru 68 ára eða eldri ekki hafa notað farsíma undir stýri síðastliðna 12 mánuði, samanborið við 25 prósent þeirra sem voru 50-67 ára og tólf prósent þeirra sem voru 30-49 ára. Tekjulægri hópar voru einnig ólíklegri til að nota farsíma undir stýri. Athygli vekur að fólk sem búsett var á höfuðborgarsvæðinu var mun líklegra til að tala í farsíma undir stýri með handfrjálsum búnaði, eða 46 prósent, samanborið við 28 prósent þeirra sem höfðu búsetu á landsbyggðinni. 29 prósent þeirra sem voru 18-29 ára höfðu notað farsíma undir stýri til að taka mynd. Til samanburðar höfðu tólf prósent þeirra sem voru á aldrinum 30-49 ára notað síma undir stýri til að taka mynd en innan við eina prósent þeirra sem voru 50 ára eða eldri. Mynd/MMRMynd/MMR
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Sjá meira