Gunnar Eyjólfsson er látinn Anton Egilsson skrifar 21. nóvember 2016 18:23 Gunnar Eyjólfsson á fjölum Þjóðleikhússins. Vísir
Gunnar Eyjólfsson, leikari, er látinn 90 ára að aldri. Hann lék í vel á annað hundrað leiksýningum, flest í Þjóðleikhúsinu, á löngum og farsælum ferli. Á vef Þjóðleikhússins er farið yfir viðburðarríkan feril Gunnars. Hann hóf sinn leikferil í sýningunni Kaupmaður í Feneyjum með Leikfélagi Reykjavíkur árið 1945. Hann stundaði nám við Royal Acacdemy of Dramatic Art í London á árunum 1945-47 og lék um skeið í Stratford og London. Hann varð svo fastráðinn leikari við Þjóðleikhúsið árið 1961 og lék þar fjölda burðarhlutverka. Meðal annars lék hann titilhlutverkin í Pétri Gaut, Hamlet, Fást, Ödípus konungi og Galdra-Lofti. Þá lék Gunnar í fjölda kvikmynda, sjónvarpsmynda og útvarpsleikrita, meðal annars í Milli fjalls og fjöru, 79 af stöðinni, Atómstöðinni, Hafinu, Mömmu Gógó, Lénharði fógeta og Paradísarheimt. Hann sat lengi í þjóðleikhúsráði og þá sat hann í menntamálaráði í rúman áratug. Gunnar var skátahöfðingi Íslands á árunum 1987-95. Gunnar vann til fjölmargra verðlauna á sínum ferli. Hann hlaut Shakespeare-verðlaunin hjá RADA, fyrstur útlendinga, vann Tennentverðlaunin og Silfurlampann árið 1963 fyrir túlkun sína á Andra og Pétri Gaut. Þá vann hann til Edduverðlauna fyrir leik sinn í kvikmyndinni Hafinu. Honum var veittur Stefaníustjakinn fyrir leiklistarstörf sín árið 2006 og heiðursverðlaun Grímunnar fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslistar á Íslandi árið 2013. Þá hlaut Gunnar riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf sín í leiklist og í þágu æskulýðsmála.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Vance þreifar fyrir sér í Sviss Erlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Fleiri fréttir Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Sjá meira