Axarkast og stauraklifur í Heiðmörk Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 16. júlí 2016 10:30 Gústaf Jarl Viðarsson skógarvörður í Heiðmörk lofar góðri skemmtun í dag en Skógarleikarnir 2016 hefjast klukkan 14. Mynd/Eyþór
Skógarleikarnir 2016 fara fram í Heiðmörk í dag. Þetta er annað árið í röð sem Skógræktarfélag Reykjavíkur efnir til leikanna. Nokkrir af færustu skógarhöggsmönnum landsins munu leiða saman hesta sína og verður gestum boðið í grillveislu. „Okkur hafði langað til að halda skógarhátíð um nokkurn tíma þegar við létum loks verða af því á síðasta ári. Leikarnir í fyrra heppnuðust mjög vel og voru bæði fjölmennir og skemmtilegir. Ætlunin er að Skógarleikarnir verði árlegur viðburður hér í Heiðmörk,“ segir Gústaf Jarl Viðarsson, skógarvörður og stjórnandi Skógarleikanna 2016, en Skógræktarfélag Reykjavíkur blæs til leikanna í dag í Heiðmörk, milli klukkan 14 og 17.Grill og ketilkaffi Gústaf lofar gestum góðri skemmtun í Furulundi. Gestir geti fengið sýnikennslu í tálgun og þá verður eldsmiður að störfum í skóginum og sýnir gamalgróin handtök. Borðtennisborð og ýmis skógarleiktæki verða einnig í lundinum og þá verður öllum boðið í grillveislu. Skógarbrauð verður grillað yfir varðeldi og boðið upp á rjúkandi ketilkaffi. Gústaf segir leikana haldna að baltneskri og bandarískri fyrirmynd og munu skógarhöggsmenn af Suður- og Vesturlandi keppa sín á milli í skógarhöggsgreinum.Axarkast og stauraklifur „Það hafa átta skógarhöggsmenn skráð sig til leiks. Þeir keppa í nokkrum greinum svo sem að höggva boli í stundur með öxi og í að afkvista boli. Keppt verður í axarkasti og einnig í stauraklifri og að rúlla bolum með prikum. Það er misjafnt milli greina hversu margir keppa, menn hafa sínar sérgreinar. Í flestum þeirra snýst þetta um að vera sem fljótastur,“ útskýrir Gústaf. Dómari fylgist með keppendum og dæmir eftir hraða en einnig vinnubrögðum. „Það má ekki skilja eftir stubba í kvistunum,“ segir Gústaf og ítrekar: „Það þarf að kunna dálítið fyrir sér í axarbeitingu svo engin hætta sé á ferðum. Það mega aðeins skógarhöggsmenn keppa í þessum greinum en gestir fá svo að spreyta sig í axarkastinu. Það er ekkert hættulegt en í það eru notaðar sérstakar kastaxir.“Köflótt stemming Gústaf segir skógarhögg á Íslandi enn sem komið er hálfgert karlasport og að einungis karlar séu skráðir til leiks á Skógarleikunum í ár. „Þetta eru allt karlar sem keppa í ár, því miður. Það hafa komið kvenkynsskógarhöggsmenn til okkar frá Danmörku en þær komast ekki í ár,“ segir Gústaf. Hann reiknar með að draga fram einkennisbúning skógarhöggsmannsins í tilefni dagsins, köflótta skyrtu, en vill þó ekki eigna íslenskum skógarhöggsmönnum hið vinsæla tískutrend, „lumberjack“ þó að það hafi ekki farið fram hjá þeim. „Jú, maður hefur tekið eftir þessari tísku, hippsterar og forritarar sem vilja líta út eins og skógarhöggsmenn,“ segir hann hlæjandi. „Það er bara skemmtilegt ef fólk horfir til náttúrunnar varðandi tísku og finnst skógarmenningin flott,“ bætir hann við og kannast einnig við vinsældir raunveruleikaþátta á sjónvarpsstöðvunum Discovery og History channel, þar sem skógarhöggsmenn eru í aðalhlutverki. „Okkur finnst nú ekki leiðinlegt að horfa þessa þætti og bröllum meira að segja ýmislegt sjálfir. Það stendur jafnvel til að byggja bjálkakofa frá grunni hér í Heiðmörk einhvern daginn en það er vel hægt að byggja bjálkakofa úr íslenskum trjám.“ Skógarleikarnir hefjast í Furulundi í Heiðmörk í dag klukkan 14.
Mest lesið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið Fleiri fréttir Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Sjá meira