Sérsveit kölluð til við að ná ölvuðum ferðamanni af svölum Þjóðleikhússins Anton Egilsson skrifar 5. nóvember 2016 11:37 Maðurinn gat ekki komist af sjálfdáðum niður af svölum Þjóðleikhússins sökum ölvunar. Vísir/Valli
Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Að mestu var um ölvun og ólæti því tengt að ræða en þá var einnig tilkynnt um líkamsárás í Hafnarfirði. Á sjötta tímanum veittu lögreglumenn í eftirliti í miðborginni karlmanni athygli en sá hafði klifrað upp á svalir Þjóðleikhússins. Reyndist þetta vera erlendur ferðamaður. Ferðamaðurinn var greinilega nokkuð ölvaður og ljóst að hann myndi ekki komast niður af sjálfsdáðum og var því óskað eftir aðstoð frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins með kranabifreið. Þá naut lögregla einnig aðstoðar lögreglumanna frá sérsveit ríkislögreglustjóra sem voru sérútbúnir til klifurs. Karlmaðurinn var svo handtekinn í kjölfarið enda gat hann ekki gefið útskýringar á þessu háttalagi sínu. Auk þess sem hann gat ekki gefið upplýsingar um hvar hann væri til húsa. Um klukkan hálf sex í morgun var karlmaður handtekinn eftir að hafa ítrekað truflað lögreglu við störf ímiðborginni auk þess sem hann hafði neitað að gefa upp persónuupplýsingar. Var hann í talsvert annarlegu ástandi sökum ölvunar. Hafði honum verið gefin ítrekuð fyrirmæli um að láta af þessu háttalagi sínu en hann varð ekki við því. Var hann því færður á lögreglustöð og vistaður í fangaklefa þangað til hægt væri að ræða við hann. Á sjöunda tímanum óskaði karlmaður sem staddur var í miðbæ Hafnarfjarðar eftir aðstoð þar sem hann hefði orðið fyrir líkamsárás inni á heimili sínu skammt frá miðbænum. Hafði komið til átaka á milli karlmannsins og meðleigjenda hans. Karlmaðurinn var með áverka á höfði og í andliti. Var hann fluttur á slysadeild til skoðunar og aðhlynningar.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira