Skagfirðingar æfir yfir rammaáætlun Sveinn Arnarsson skrifar 8. ágúst 2016 07:00 Margir virðast mjög óánægðir með drög að skýrslu þriðja áfanga rammaáætlunar. fréttablaðið/vilhelm
Meirihluti byggðaráðs Skagafjarðar telur að í drögum að lokaskýrslu verkefnastjórnar um 3. áfanga rammaáætlunar sé lögum ekki fylgt, rangt farið með staðreyndir, ekki hlustað á raddir heimamanna og að málið sé ekki rannsakað til hlítar. „Sveitarfélagið Skagafjörður krefst þess að þau virkjunaráform í Skagafirði sem sett hafa verið í verndarflokk verði í það minnsta flutt í biðflokk enda er þeirri greiningarvinnu sem liggja á til grundvallar ábótavant,“ segir í bókun sem Stefán Vagn Stefánsson og Sigríður Svavarsdóttir samþykktu. Bjarni Jónsson, minnihlutamaður í VG, og Sigurjón Þórðarson áheyrnarfulltrúi voru andvígir og segja þeir inntak kvartana meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks snúa að því að ekki hafi verið haft samráð við heimamenn. „Það er verulega öfugsnúið og í raun furðulegt í ljósi þess að meirihlutinn hefur ekki haft fyrir því að hafa samráð við fulltrúa minnihluta um þá umsögn sem nú birtist og hefur á sér fremur ólundarlegt yfirbragð,“ bókuðu Bjarni og Sigurjón. Meirihlutinn telur að ekki hafi verið skoðuð hagræn áhrif virkjana í Skagafirði á heimabyggð. Aðeins voru skoðuð áhrif á náttúru og menningarminjar og aðra nýtingarmöguleika en orkuöflun.Stefán Vagn Stefánsson, formaður byggðaráðs Skagafjarðar„Þá er verulega ámælisvert að mat fyrrgreindra faghópa á áhrifum mögulegra virkjana í Skagafirði virðist í mörgum tilfellum ekki stutt rökum heldur byggt á einhvers konar huglægu mati,“ segir meirihlutinn sem tekur undir orð Orkustofnunar að rökum sé slengt fram án þess að fótur sé fyrir þeim. Bent er á að meirihluti íbúa Skagafjarðar og einnig þeirra sem búa í námunda við fyrirhugaða virkjunarkosti í Skagafirði vilji virkja og nýta raforku í heimabyggð. „Ekki virðist eiga að hlusta á þessi sjónarmið meginþorra íbúa þegar tekin er ákvörðun um að setja virkjanakosti í Skagafirði í verndarflokk. Það er ólíðandi með öllu að íbúar fái ekkert um framtíð sína eða síns svæðis að segja,“ segir í harðorðri bókun byggðaráðs. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Erlent Fleiri fréttir Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Sjá meira