Frosti Logason biðst afsökunar á vinnustaðarhrekk Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 26. júlí 2016 14:25
Frosti Logason, annar umsjónarmaður útvarpsþáttarins Harmageddon á X977, byrjaði þáttinn í morgun á að biðja Helga Má Bjarnason afsökunar á vinnustaðahrekk sem hann taldi hafa gengið of langt. Helgi Már, sem stýrir útvarpsþættinum Party Zone á X977 á laugardagskvöldum er víst gjarn á að gleyma að skrá sig út af Facebook þegar hann yfirgefur vinnu um helgar. Þegar Frosti mætti til vinnu í gærmorgun sá hann að Helgi Már var enn skráður inn og ákvað að hrekkja félaga sinn örlítið. Frosti er ekki gjarn á að afsaka sig en segist þó í þetta sinn hafa gengið of langt. Hann hafði uppi á frétt um hryðjuverk í Evrópu, deildi henni í nafni Helga Más og lét eftirfarandi texta fylgja: „Nú er nóg komið! Ég held að nú sé runninn upp sú stund þegar leiðtogar ættu að koma sér saman um þá ákvörðun að vísa öllum múslimum úr álfunni og skella svo í lás á eftir. Þetta getur ekki gengið áfram svona.“ Fjöldi fólks féll fyrir gríninu og veittist að Helga Má í gegnum Facebook. „Mér óraði ekki fyrir því að fólk myndi virkilega trúa þessu og þess vegna var þetta grín mjög óviðeigandi. Og ég vil biðja Helga Má, fjölskyldu hans og vinnufélaga, og alla sem að málinu koma innilega afsökunar á þessu misheppnaða gríni mínu,“ sagði Frosti sem jafnframt hefur lofað Helga Má að setja aldrei inn færslu á facebook í hans nafni framar. Hlusta má á afsökunarbeiðni Frosta í spilaranum hér að ofan.
Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Sjá meira