Fáar nauðganir enda fyrir dómi Snærós Sindradóttir skrifar 21. október 2016 07:00 Útreikningar Fréttablaðsins sýna að brotabrot nauðgana endar fyrir dómi
Afar lágt hlutfall nauðgana á Íslandi endar með sakfellingu brotamannsins samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins. Þetta rímar við rannsóknir annars staðar á Vesturlöndum sem sýna sömu eða svipaðar niðurstöður. Við útreikningana tók Fréttablaðið saman tölur frá Ríkislögreglustjóra um tilkynntar nauðganir til lögreglunnar, útgefnar ákærur ríkissaksóknara í nauðgunarmálum og sakfellingar hjá héraðsdómstólunum árið 2014. Tölur frá árinu 2015 þóttu ekki gefa nægilega skýra mynd þar sem 32 prósent tilkynntra mála það árið eru enn til rannsóknar hjá lögreglu. Að endingu voru skoðaðar ársskýrslur Stígamóta þar sem að meðaltali 10 prósent þolenda sem leita til samtakanna kæra brot sitt til lögreglu. Það rímar við erlendar rannsóknir um að tíu prósent þolenda kæri nauðgun til lögreglu sem þýðir að um 1.300 nauðganir hafi átt sér stað á Íslandi árið 2014. Hins vegar er vert að nefna sænska rannsókn frá Háskólanum í Uppsölum frá árinu 2014 sem segir að einungis fimm prósent kvenna sem verða fyrir kynferðisofbeldi á fullorðinsárum kæri málið til lögreglu.María Rut Kristinsdóttir, sérfræðingur í Innanríkisráðuneytinu.Mynd/Ingileif FriðriksdóttirVert er að taka það fram að þessi útreikningur gefur aðeins mynd af því hvernig staðan er í þessum málum. Langur málsmeðferðartími hjá lögreglu, ríkissaksóknara og dómstólum veldur því að ólíklegt er að nokkur, ef einhver, þeirra mála sem tilkynnt voru hjá lögreglu 2014 séu komin í gegnum kerfið fyrir árslok. Þrátt fyrir það er tölfræðin svipuð ár frá ári og þess vegna óhætt að draga þá ályktun að þarna fari nokkuð raunsönn mynd af hlutfalli þeirra nauðgunarmála sem sakfellt er í. Samráðshópur innanríkisráðuneytisins um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu hefur skilað af sér aðgerðaáætlun til fjögurra ára í málaflokknum og vinnur að því að forgangsraða verkefnum. „Það sem við erum að skoða er hvernig við getum stytt málsmeðferðartíma, tryggt gæði rannsókna, styrkt endurmenntun innan kerfisins og tryggt skilvirk úrræði fyrir brotaþola og sakborninga,“ segir María Rut Kristinsdóttir, formaður hópsins. „Auðvitað miða allar þessar aðgerðir að því að gera kerfið betra og auka traust fólks á kerfinu svo það komi og leiti inn í kerfið þegar brotið hefur verið á því. Þannig getum við tryggt réttaröryggi.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira