Enn hefur ekkert spurst til Héðins Garðarssonar, 43 ára, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra í morgun. Lögreglan lýsti eftir Héðni í gærkvöldi.
Héðinn fór frá heimili sínu á Akureyri um klukkan 9 í gærmorgun og hefur ekkert sést til hans síðan.
Vitað er að Héðinn fór á bifreiðinni TH-979, sem er rauð Suzuki Grand Vitara, árgerð 2000. Og er bifreiðin er með svartar felgur.
Talið er að hann sé klæddur í gráar vinnubuxur, hvítan suttermabol og í svartri renndri hettupeysu.
Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Héðins eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna, t.d. í gegnum einkaskilaboð á fésbókarsíðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra eða í síma 444-2805.
Sjái fólk bifreiðina, kyrrstæða eða á ferð, skal hringja strax í 112,“ segir í tilkynningunni.
Enn hefur ekkert spurst til Héðins
Atli ísleifsson skrifar
