Harry Kane, framherji enska landsliðsins í fótbolta, varar menn við að vera of værukærir í leiknum gegn Ísland í 16 liða úrslitum EM 2016 á mánudagskvöldið en leikurinn fer fram í Nice.
Enska liðið hafnaði í öðru sæti í sínum riðli og íslenska liðið í öðrum sæti í F-riðli eftir sigur á Austurríki í lokaumferð riðlakeppninnar.
„Við vonum að ekkert óvænt gerist. Furðulegir hlutir gerast í fótbolta þannig við verðum að vera einbeittir og spila eins vel og við getum,“ sagði Kane á blaðamannafundi enska liðsins í gær.
Tottenham-maðurinn telur að Englendingar geti farið alla leið og unnið mótið en til þess þurfa þeir að leggja ansi sterk lið á leiðinni.
„Mér finnst við ekkert langt frá þeim bestu. Þetta er mót sem við getum unnið. Við erum eitt besta liðið á þessu móti. Við erum fullir sjálfstrausts og óttumst engan,“ sagði Kane sem vísaði þeim ásökunum á bug að hann væri eitthvað þreyttur eins og enskir blaðamenn hafa haldið fram.
„Ég er ekkert þreyttur. Ég spilaði í lokakeppni EM U21 árs í fyrra og var 100 prósent ferskur. Ég er klár ef ég fæ kallið og mun gefa allt mitt í leikinn. Þetta er spennandi. Okkur langar í átta liða úrslitin og svo sjá hversu langt við getum komist,“ sagði Harry Kane.
Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).
Harry Kane um leikinn gegn Íslandi: „Furðulegir hlutir gerast í fótbolta“

Tengdar fréttir

Næsta brekka reynst of brött fyrir Lars Lagerbäck
Lars Lagerbäck hefur þrisvar í sex tilraunum komið liði upp úr riðli á Evrópumóti eða í heimsmeistarakeppni en hann hefur aldrei farið í gegnum fyrsta leik í útsláttarkeppni. Hann reynir nú í fjórða sinn.

Eiður Smári fór á kostum á blaðamannafundi Íslands | Myndband
Eiður Smári Guðjohnsen og Heimir Hallgrímsson sátu blaðamannafund íslenska liðsins í Annecy fyrir leikinn gegn Englandi.