Leika krefjandi tónlist með fólki sem elskar að spila Magnús Guðmundsson skrifar 27. ágúst 2016 12:30 Benedikt og Gabri hafa verið afar ánægð með Íslandsferðina.
Úrvalshljómsveitin Verbandsjugendorchester Hochrhein er í heimsókn á Íslandi um þessar mundir. Alls eru um 70 hljóðfæraleikarar í hljómsveitinni á aldrinum 15-28 ára, handvaldir úr 120 blásarasveitum frá Hochrhein-héraðinu í suðurhluta Þýskalands. Markmið sveitarinnar er að gefa ungum hljóðfæraleikurum tækifæri til að leika krefjandi tónlist í háum gæðaflokki. Á efnisskránni eru því verk úr sinfónískum geira tónbókmenntanna og samtímatónlist í bland við léttari tónlist og djassaðar tónsmíðar. Stjórnandi Verbandsjugendorchester Hochrhein undanfarin 20 ár er Englendingurinn Julian Gibbons. Benedikt, sem er 28 ára trompetleikari frá Lörrach, segir að mesti kosturinn við hljómsveitina sé að fá tækifæri til að spila flottari músík en hans heimahljómsveit ræður við að spila. Hann hefur spilað með VJO í níu ár og er núna á síðasta árinu sínu. Gabri er 18 ára frá Laufenburg og hefur spilað á saxófón undanfarin níu ár. „Það er mikilvægt að ungir og hæfileikaríkir tónlistarmenn fái möguleika á að spila krefjandi tónverk með hópi fólks sem elskar tónlist og að spila á hljóðfæri.” Síðustu tónleikar sveitarinnar í Íslandsferðinni verða í Hofi á Akureyri laugardaginn 27. ágúst kl. 16 og í Langholtskirkju mánudaginn 29. ágúst kl. 19.30.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 27. ágúst.
Menning Mest lesið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið „Hluti af mér dó með honum“ Lífið Lagt við hlustir Menning Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira