Innlent

Forseti deildarinnar til sumars 2018

Óli Kr. Ármannsson skrifar
Ásgeir Jónsson er nýr forseti hagfræðideildar HÍ.
Ásgeir Jónsson er nýr forseti hagfræðideildar HÍ.
Ásgeir Jónsson, dósent við Háskóla Íslands, hefur verið kjörinn deildarforseti hagfræðideildar skólans fram til sumars 2018. Fram kemur í tilkynningu frá háskólanum að hann hafi þegar tekið við af Tór Einarssyni. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir gegnir stöðu varaforseta deildarinnar fram til 1. júlí 2016.

„Auk stöðu deildarforseta er Ásgeir umsjónarmaður meistaranáms í fjármálahagfræði við sömu deild,“ segir á vef háskólans. „Þau verkefni sem Ásgeir hefur unnið að eru meðal annars tengd alþjóðafjármálum, peningahagfræði, hagsögu, orkuhagfræði, fasteignamarkaðinum, byggðahagfræði og almennri þjóðhagfræði.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×