Er elst af fimm ættliðum 30. júlí 2016 11:15 Petrína með langalangömmustúlkuna Sölku Sól Björgvinsdóttur, næst er móðir Sölku Sólar, Sólveig Rut Sigurðardóttir, langamman Rut Andersen og amman Ásta Guðjónsdóttir. Fréttablaðið/Eyþór
Petrína Kristín Steindórsdóttir er 85 ára í dag. Hún á fjóra ættliði fyrir framan sig og það í beinan kvenlegg. „Við vorum allar frekar ungar þegar við fæddum,“ segir hún og kveðst sjálf hafa verið 18 ára þegar hún eignaðist dótturina Rut, sem nú er orðin langamma. Petrína situr við glugga í vistlegu herbergi á Hrafnistu í Reykjavík þar sem runni teygir sig upp á rúðuna að utanverðu. „Mér finnst ég mjög heppin að komast hingað. Þetta er góður staður og ég er á jarðhæð þar sem ég get gengið beint út,“ segir hún. Í Bolungarvík eru æskustöðvar Petrínu en hún kveðst hafa flutt suður milli tvítugs og þrítugs. „Ég bjó lengst á Nönnugötu 6 með manninum mínum, Jóhannesi Jóhannessyni, hann fæddist í því húsi og dó þar líka fyrir þremur árum, þá 91 árs. Ég var um tíma á Nönnugötunni eftir það en svo veiktist ég og þurfti á spítala. Nú er ég sæmilega hraust en svolítið máttlaus. Á svolítið erfitt með að ganga úti en er alveg ágæt innan dyra.“ Petrína er rík af afkomendum, eignaðist sex börn svo nóg var að gera. Hún kveðst líka hafa unnið hin ýmsu störf utan heimilis, meðal annars í fatadeild Hagkaupa á Laugavegi um tíma. „Ég hef alltaf haft gaman af fötum svo það hentaði mér vel,“ segir hún og bætir við: „Mér fannst ég hraustari ef ég vann utan heimilis, það fór betur með mig en að vera alltaf heima.“ Tónlist hefur glatt Petrínu mikið gegnum tíðina. Sjálf söng hún í kirkjukór Ásprestakalls og tók þá þátt í helgihaldi á hinum ýmsu deildum Hrafnistu. „Ég er ansi kunnug innan dyra hér því hingað kom ég oft,“ segir hún. „Svo starfaði ég í Kristniboðsfélagi kvenna sem er elsta kvenfélag landsins.“ Sá fallegi siður tíðkast á Hrafnistu að bjóða heimilisfólki upp á vöfflur eða tertu með kaffinu þegar einhver á stórafmæli og út af því verður ekki brugðið í dag. „Þær ætla að baka fyrir mig vöfflur, stúlkurnar,“ segir Petrína. „Það finnst mér voða gott, allir eru hrifnir af vöfflum.“ gun@frettabladid.is
Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Sjá meira