Segja VLFA hafa undirgengist SALEK Óli Kristján Ármannsson skrifar 6. febrúar 2016 07:00 Eina kennarastéttin sem sveitarfélögin eiga eftir að semja við eru tónlistarkennarar. Myndin er frá mótmælum þeirra fyrir tæpum tveimur árum. Fréttablaðið/Valli
Aukaatriði er hvort SALEK rammasamkomulagið fylgdi nýgerðum kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Akraness (VLFA) sem fylgiskjal. Þetta segir í yfirlýsingu sem sambandið sendi frá sér í gær sem viðbrögð við yfirlýsingum Vilhjálms Birgissonar, formanns VLFA, um samninginn, sem skrifað var undir í vikunni. „Með undirritun SALEK rammasamkomulagins þann 27. október 2015 samþykkti Samband íslenskra sveitarfélaga þá launastefnu og þau markmið sem rammasamkomulagið felur í sér og hefur á síðustu mánuðum lokið gerð kjarasamninga við 43 stéttarfélög á grundvelli þeirrar launastefnu,“ segir í yfirlýsingunni.Vilhjálmur Birgisson formaður VLFANýgerður kjarasamningur við Verkalýðsfélag Akraness sé þar engin undantekning. „Með undirskrift kjarasamningsins hefur Vilhjálmur Birgisson því undirgengist launastefnu SALEK rammasamkomulagsins og þegið þær launahækkanir sem stefnunni fylgja.“ Á vef VLFA gagnrýnir Vilhjálmur yfirlýsingu Sambands sveitarfélaga harðlega og bendir á að orðalag sé annað í inngangi að nýgerðum samningi við sveitarfélögin en viðhaft sé á öðrum samningum. Í samningnum sé vísað til þessa einstaka samnings, meðan í öðrum samningum sé ákvæði um að aðilar séu „sammála um að vinna samkvæmt“ launastefnunni frá 27. október. Þá hafi ekki steytt á öðru í viðræðunum en umræddu orðalagi og fylgiskjali um SALEK. Í janúarbyrjun áttu sveitarfélögin ósamið við 27 af 67 stéttarfélögum, en þeim hefur nú fækkað um þrjú þannig að 24 eru eftir.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Sjá meira