Varðskipið kallað út vegna hjartveiks skipverja í norsku loðnuskipi sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 6. febrúar 2016 19:30 Varðskipið Þór. vísir/daníel
Varðskipið Þór var kallað út um klukkan eitt í dag eftir að beiðni barst frá björgunarmiðstöðunni í Stavanger um aðstoð vegna hjartveiks skipverja um borð í norsku loðnuskipi sem statt var um 115 sjómílur austur af Norðfirði á leið á loðnumiðin. Varðskipið var þá statt í um 58 sjómílna fjarlægð og var komið á vettvang rétt fyrir klukkan hálf fjögur í dag. Sjúkraflutningamenn úr áhöfninni fóru um borð til að aðgæta sjúklinginn, tekið var hjartalínurit og ástand sjúklingsins metið. Í framhaldi af því var í samráði við þyrlulækni Landhelgisgæslunnar ákveðið að flytja sjúklinginn í land. Nú halda bæði varðskipið Þór og norska loðnuskipið áleiðis til Neskaupstaðar og er fyrirhugað að þyrla Landhelgisgæslunnar fljúgi síðar til mótsvið skipin og flytji sjúklinginn á sjúkrahús. Talsvert annríki hefur verið hjá gæslunni í dag. Skömmu eftir að beiðnin barst frá Noregi var óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna tveggja slasaðra göngumanna á Skarðsheiði. Þyrlan hélt af stað og var fljótlega komin á slysstað. Þá höfðu björgunarsveitir ekki komist á vettvang og voru samferðamenn hinna slösuðu einir á vettvangi. Aðstæður á slysstað voru erfiðar en greiðlega gekk fyrir áhöfn þyrlunnar að búa um hina slösuðu og flytja þá um borð í þyrluna. Haldið var rakleiðis til Reykjavíkur og lent rúmlega þrjú við Landspítala Háskólasjúkrahús með göngumennina.
Tengdar fréttir Féllu í hálku og runnu niður um 100 metra Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti göngufólk sem rann til í hálku og féll niður hlíð í Skarðsdal á Skarðsheiði. 6. febrúar 2016 16:47 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Sjá meira
Féllu í hálku og runnu niður um 100 metra Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti göngufólk sem rann til í hálku og féll niður hlíð í Skarðsdal á Skarðsheiði. 6. febrúar 2016 16:47