Kalkskortur sagður vandamál of víða Óli Kristján Ármannsson skrifar 20. janúar 2016 06:00 Hér á landi er hefð fyrir neyslu mjólkurvara sem ríkar eru af kalki. Fréttablaðið/Pjetur
Víða um heim er kalkskortur í fæði vandamál, að því er fram kemur í nýrri könnun sem fjallað er um á vef Landssambands kúabænda. Síðasta neyslukönnun Landlæknisembættisins bendir þó ekki til þess að hér á landi sé um slíkan vanda að ræða, nema hjá einum hópi. Á vefnum naut.is er vísað til nýrrar rannsóknar IOF, alþjóðlegra beinþynningarsamtaka, sem gerð hafi verið á sjö þúsund einstaklingum í 80 löndum, sem sýni skýrt að kalkneysla sé langt undir þeim viðmiðunarmörkum sem í dag gildi fyrir daglega neyslu. „Að jafnaði nam neyslan 594 milligrömmum af kalki á dag,“ segir þar, en ráðlagður dagskammtur sé 1.000 milligrömm fyrir fullorðna og 1.300 milligrömm fyrir níu til átján ára. „Þá er fólki sem er eldra en 70 ára ráðlagt að neyta 1.200 milligramma af kalki daglega.“ Í reglubundinni landskönnun Landlæknisembættisins á mataræði landsmanna sem birt var 2012 kemur fram að hér á landi hafi kalk í fæði minnkað vegna minni mjólkurneyslu. „En flestir aldurshópar ná þó ráðlögðum dagskammti fyrir kalk að meðaltali nema elsti aldurshópur kvenna,“ segir þar. Í umfjöllun Landssambands kúabænda er bent á að skortur á kalki geti leitt til bæði beinþynningar, vandamála með sjón og hjartavandamála. „Eitt mjólkurglas inniheldur um 300 milligrömm af kalki en mjólkurvörur eru taldar með bestu kalkgjöfum sem völ er á,“ segir þar. Á vef Landlæknis kemur fram að hæfilegt magn af mjólk eða mjólkurvörum á dag samsvari tveimur glösum, diskum eða dósum (eða 500 millilítrum). Þá geti ostur komið í stað annarra mjólkurvara að hluta til. Einnig að takmarka eigi neyslu á mjólkurvörum með mikilli mettaðri fitu eins og nýmjólk, rjóma, feitum ostum og smjöri.
Mest lesið „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni Innlent Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Innlent Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Innlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Fleiri fréttir Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Sjá meira