Beitti konu sína ofbeldi eftir ásakanir um framhjáhald Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. janúar 2016 17:17 Árásin átti sér stað á heimili parsins að loknum dansleik en þau sökuðu hvort annað um framhjáhald umrætt kvöld. Vísir/Getty
Hæstiréttur hefur staðfest fimm mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjaness yfir manni fyrir líkamsárás á þáverandi sambýliskonu aðfaranótt sunnudagsins 1. september 2013. Árásin átti sér stað á heimili þeirra að loknum dansleik en þau sökuðu hvort annað um framhjáhald umrætt kvöld. Í ákæru er háttsemi mannsins lýst þannig að hann hafi slegið konuna hnefahöggi í andlitið, hent henni utan í svefnherbergisskáp, hrint henni svo að hún hafi fallið og lent með vinstri öxlina á kommóðu, tekið í hönd hennar og sparkað, klæddur skóm, í vinstra læri hennar, sparkað í hægri kálfa hennar og síðu, tekið hana hálstaki með báðum höndum og hent henni utan í vegg og ýtt með höndunum á bringu hennar þannig að hún féll aftur fyrir sig og lenti á glerborði. Taldi Hæstiréttur, ólíkt dómi í héraði, ósannað að maðurinn hefði hent konunni utan í svefnherbergisskáp og sparkað í hana. Þá var í héraði ekki fallist á að hún hefði verið tekin hálfstaki. Hlaut konan tvö rifbeinsbrot, sár og mar á hægri olnboga, mar á vinstri öxl, utanverðu lægri og utanvert á hné. Maðurinn neitaði sök fyrir dómi en viðurkenndi að hafa ýtt við brotaþola þannig að hún hafi fallið á sófaborð og sófa. Ótrúverðugur vitnisburður mannsins Maðurinn og konan höfðu verið við drykkju yfir daginn og svo haldið saman á dansleik. Maðurinn sagðist hafa séð konu sína kyssa annan mann og því haldið heim á leið, sagst vera búinn að gefast upp á konunni, ætlað að flytja út og því byrjað að pakka niður í tösku. Konan sagðist hafa heyrt í gegnum þriðja aðila að maðurinn teldi sig halda framhjá sem væri ekki satt. Við heimkomu sakaði hún manninn um framhjáhald. Þá hafi maðurinn brugðist við með ofbeldi. Í dómi héraðdóms frá í fyrra segir að verknaðarlýsingin úr ákærunni samrýmist áverkavottorði sem fengið var hálfum sólarhring eftir árásina að frátöldu því að ekkert kom fram um að konan hefði kennt sér meins í hálsi eftir hálstak. Myndir af heimilinu sýndu að atburðarás sem maðurinn lýsti væri mjög ótrúverðug og að engu hafandi. Það styddi ekki frásögn hans. Þá þótti vitnisburður vinkvenna konunnar og dóttur, sem komu á vettvang ásamt lögreglu að beiðni konunnar, auk framburðar konunnar og áverkavottorð telja lögfulla sönnun að maðurinn hefði veist að konunni. Maðurinn hefur ekki verið dæmdur áður og þótti fimm mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, hæfilegur dómur. Konan fór fram á eina milljón króna í miskabætur en dómurinn ákvað að hálf milljón væri hæfileg upphærð. Dómur Hæstaréttar
Tengdar fréttir Sökuðu hvort annað um framhjáhald Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás á þáverandi sambýliskonu aðfaranótt sunnudagsins 1. september 2013. 8. janúar 2015 12:45 Mest lesið Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Innlent Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Innlent Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Innlent Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Innlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Innlent Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Erlent „Skólinn okkar er alltof lítill“ Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Fleiri fréttir Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Sjá meira
Sökuðu hvort annað um framhjáhald Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás á þáverandi sambýliskonu aðfaranótt sunnudagsins 1. september 2013. 8. janúar 2015 12:45