Merktu 12.568 fugla af 77 tegundum á Íslandi í fyrra Svavar Hávarðsson skrifar 12. mars 2016 07:00 Merki kríu frá Íslandi endurheimtist í Suður-Afríku. Fréttablaðið/vilhelm
Fjöldi merktra fugla á Íslandi í fyrra var 12.568 af 77 tegundum, sem er lítillega undir tíu ára meðaltali. Um vinnu 49 merkingarmanna er að ræða. Fuglar hafa verið merktir á Íslandi síðan árið 1921 og fer Náttúrufræðistofnun Íslands með umsjón fuglamerkinga. Alls hafa verið merktir 680.720 fuglar af 154 tegundum, mest af snjótittlingi eða rúmlega 80 þúsund fuglar, segir í frétt stofnunarinnar. Mest var merkt af skógarþresti, 1.683 fuglar. Þar á eftir komu 1.453 kríur, 1.134 lundar, 987 auðnutittlingar og 943 ritur. Ein tegund var merkt í fyrsta sinn hér á landi, ljóshöfðaönd (anas americana). Frá upphafi hafa verið skráðir 55.285 endurfundir merkja. Árið 2015 var óvenju mikið tilkynnt um endurheimtur og álestra á merki á lifandi fuglum. Alls bárust 2.365 tilkynningar um endurheimtur íslenskra merkja og komu 154 þeirra frá öðrum löndum. Algengastir voru auðnutittlingar eða 1.636 fuglar en þar á eftir komu 172 álftir, 83 sílamávar, 75 æðarfuglar og 44 snjótittlingar. Langförulasti fuglinn sem endurheimtur var í fyrra var kría sem merkt var sem ófleygur ungi sumarið 2013 í Óslandi við Höfn í Hornafirði. Hún fannst örmagna við Höfðaborg í Suður-Afríku í október síðastliðnum, 11.319 kílómetra frá merkingarstað, þar sem hún bar beinin.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Fleiri fréttir Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Sjá meira