Innlent

Nakin á Barónsstíg eftir innbrot

Gissur Sigurðsson skrifar
Konan hafði háttað sig inni í íbúðinni sem hún braust inn í.
Konan hafði háttað sig inni í íbúðinni sem hún braust inn í. Vísir/KTD
Lögreglu var tilkynnt um að nakin kona væri á ferðinni á Barónsstíg á tólfta tímanum í gærkvöldi. Hún var komin niður á Laugaveg þegar hún fannst, í mjög annarlegu ástandi, að sögn lögreglu.

Konan var vistuð í fangageymslu en nokkru eftir að hún var handtekin kom í ljós að hún hafði brotist inn í hús við Barónsstíg og ber háttað sig þar, en skildi fötin eftir, sem kom upp um hana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×