Ökumaður sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 20. október 2016 14:57 Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til vegna slyssins. Vísir/Stefán
Karlmaður sem ók jeppa sínum á þriggja ára stúlku með þeim afleiðingum að hún lést hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Suðurlands af ákæru um manndráp af gáleysi. Atvikið átti sér stað á bílastæði við sveitabæ í Biskupstungum í október á síðasta ári. Var manninum gert það að sök að hafa ekið jeppanum af stað og skamman veg til hægri án nægjanlegrar aðgæslu með þeim afleiðingum að stúlkan varð fyrir jeppanum og lenti undir honum. Hlaut hún við það svo mikla höfuðáverka að hún lést nær samstundis. Var hún flutt með þyrlu á sjúkrahús í Reykjavík, en úrskurðuð látin þar. Var þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til sviptingar ökuréttar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Aðalmeðferð málsins fór fram í september og gáfu meðal annars fyrrum sambýliskona hins ákærða, vinkonur hennar og makar sem voru gestkomandi á sveitabænum þennan dag, skýrslu fyrir dómi. Skýrslur voru einnig teknar af lögreglumönnum sem komu á vettvang. Í dóminum segir að ekkert hafi komið fram í málinu sem bendi til þess að ökumaður jeppans hafi ekið ógætilega af stað. Þá sýni vettvangsuppdráttur lögreglu að ökumaðurinn hafi einungis ekið skamman veg eða um þrjá metra. Var það mat dómara að ákæruvaldið hafi ekki hafa fært fram nægilega sönnun fyrir því að umrætt banaslys verði rakið til gáleysis ákærða þannig hann yrði sakfelldur fyrir þau brot sem hann var ákærður fyrir. Var ökumaðurinn því sýknaður og greiðist sakarkostnaður, 4,4 milljónir króna, úr ríkissjóði.Sjá má dóm héraðsdóms hér.
Tengdar fréttir Banaslys í Árnessýslu Þriggja ára barn varð undir jeppa á bifreiðastæði. 24. október 2015 22:24 Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira