Fiskikóngurinn í Panamaskjölunum Jakob Bjarnar skrifar 20. október 2016 20:55 Fiskikóngurinn leysti greiðlega úr spurningum rannsóknarblaðamanna meðan aðrir tóku þeim illa.
Eitt þeirra nafna sem finna má í Panamaskjölunum er Kristján Berg Ásgeirsson sem betur er þekktur sem Fiskikóngurinn. Félag hans var stofnað árið 2006 á Seychelles-eyjum, Solberg Group Ltd. Ráðleggingar. Fiskikóngurinn segir þetta þannig til komið að þegar hann seldi fiskbúð sína Vör og flutti til Danmerkur hafi skattar þar verið „sextíu og eitthvað prósent. Ég var með einkabankaþjónustu í Lúxemborg og þeir ráðlögðu mér þetta.“Fiskikóngurinn leggur öll spil á borðiðÞetta er meðal þess sem fram kemur í úttekt sem Reykjavík Media birti nú í kvöld í samvinnu við Fréttatímann. Þar kemur fram að fjöldi þeirra sem hafa starfað í útgerðinni eigi reikninga í aflandsfélögum. Flestir þeirra sem blaðamennirnir Ingi Freyr Vilhjálmsson og Jóhannes Kr. Kristjánsson reyndu að ná tali af vegna þessara reikninga brugðust ókvæða við. En, ekki Fiskikóngurinn sem lagði öll spil á borðið umsvifalaust. Hann segist hafa haft afskaplega lítinn áhuga á því að afrakstur hans vinnu síðastliðin 25 ár færu í skatta í Danmörku. Hann ætlaði ekki að láta danska ríkið hirða það. Kristján Berg segist hafa borgað skatt af sölunni á Íslandi, svo kom hrunið og hann metur það sem svo að hann hafi tapað 200 milljónum á hruninu. Og félagið sé hann löngu hættur að nota. „Ég flutti svo bara aftur til Íslands og er bara búinn að vinna baki brotnu síðan. Ég kann ekkert í fjárfestingum; ég er bara fisksali og hef alltaf bara verið það. Ég treysti öðrum mönnum til að gefa mér ráðleggingar um þetta. Ég vissi ekki betur á þessum tíma en að þetta væri í lagi. Ég var þrjátíu og tveggja ára og hélt ég gæti bara hætt að vinna og lifað á þessum peningum. Það er leiðinlegasta starf sem ég hef verið í,“ sagði einlægur Fiskikóngurinn við rannsóknarblaðamennina.Margir fiskútflytjendur í Panamaskjölunum Reykjavík Media og Fréttatíminn beina meðal annars sjónum sínum að Ellerti Vigfússyni fjárfesti og fiskútflytjanda en hann hefur átt í fyrirtækjum eins og Icelandic Group og Sjóvík. Nafn hans er að finna í Panamaskjölunum þeim sem komu frá lögmannsstofunni Mossack Fonseca. Ellert hefur lítinn áhuga á að ræða þau mál við blaðamenn en félög hans í skjölunum heita Elite Seafoods Panama Corp, Norys Capital Ltd. og Becot Holding S.A. – eru einungis þrjú af fyrirtækjunum í gögnum Mossack Fonseca sem tengjast íslenskum sjávarútvegi með beinum eða óbeinum hætti. „Af íslenskum aðilum tengdum sjávarútvegi er Ellert einna umsvifamestur í Panamaskjölunum. Eitt af aflandsfélögum Eggerts, Norys Capital, fékk til dæmis lánaðar 850 milljónir króna frá Landsbankanum í Lúxemborg árið 2002,“ segir í ítarlegri umfjölluninni. Þar segir einnig: „Eitt af því sem vekur athygli í gögnunum er hversu margir fiskútflytjendur eru þar.“
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira