Innlent

Þyrla Gæslunnar sótti alvarlega veikan mann á Snæfellsnes

Atli Ísleifsson skrifar
TF-Gná var send á vettvang.
TF-Gná var send á vettvang. Vísir/vilhelm
Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug til móts við sjúkrabíl á Snæfellsnesi sem var að flytja alvarlega veikan einstakling til Reykjavíkur. Beiðnin barst klukkan 15:25.

Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni kemur fram að TF-GNÁ hafi farið í loftið mjög fljótlega og verið komin á vettvang á þjóðveginum við Svínhól um klukkan 16:15.

„Var sjúklingurinn færður um borð í þyrluna og fluttur á sjúkrahús í Reykjavík þar sem lent var klukkan 16.50,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×