Tónlistarkonan Björk biður þess að David Bowie megi hvíla í friði en upplýsir jafnframt að það hafi verið Bowie sem einkum og sérílagi ber ábyrgð á því að hún klæddist hinum fræga svanakjóli sínum við Óskarsverðlaunaafhendinguna árið 2001.
Ástæðan má heita frumleg, Björk segir að Bowie hafi alltaf sagt við sig eitthvað á þá leið að hann hafi alltaf velt því fyrir sér hvernig hún liti út sem fugl sem væri að verpa.

Eins og þeir vita sem fylgjast með Óskarsverðlaunaafhendingunni tengist hátíðinni mikið stóð tískufólks sem veit fátt merkilegra í lífinu og tilverunni en mæna í kjóla þeirra frægðarkvenna sem mæta á verðlaunaafhendinguna. Kjóll Bjarkar vakti á sínum tíma gríðarlega athygli, hneykslan margra en var, í mikilli úttekt og könnun Debenhams, sem birt var í The Daily Telegraph 2008, kosinn níundi minnisstæðasti kjóll sem nokkur hefur klæðst á rauða dreglinum.