Hátíð í harðri samkeppni við Menningarnótt Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 20. ágúst 2015 14:00 Hér verður stuð á laugardagskvöldið, lofar Linda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „
Það verður vonandi rokna stuð hér um helgina,“ upplýsir Linda Guðmundsdóttir, verslunarstjóri í kaupfélaginu í Norðurfirði á Ströndum, sem stendur fyrir bryggjuballi við smábátahöfnina og veitir þar með Menningarnótt í Reykjavík harða samkeppni. Hún segir tímasetninguna góða fyrir heimafólkið, eftir heyskap og strandveiði, nú sé örlítil pása þar til smalamennskur byrji og aðrar haustannir. „Ballið er fyrst og fremst hugsað fyrir fólk hér í kring en auðvitað fögnum við öllum sem vilja skemmta sér fallega með okkur,“ segir hún. Tónar harmóníkunnar munu hljóma í Árneshreppnum, því sjálf spilar Linda á það göfuga hljóðfæri og fær til sín spilara bæði úr Eyjafirði og að sunnan, þeirra á meðal Friðjón Jóhannsson sem margir landsmenn kannast við. „Auðvitað verður hér alvöru hljómsveit með gítar, trommu og bassa líka,“ tekur Linda fram og segir verða dansað úti. „Þetta er bryggjuball, það er auðvelt að dansa á smábátabryggjunni en hljómsveitin verður í gámi svo hún fái skjól. Við ætlum að skreyta hér með seríum og kertum og gera þetta svolítið kósí.“ Hún kveðst vona að bryggjuballið verði árvisst á haustin næstu ár. „En þetta er fyrsta tilraun,“ segir hún. „Hugdetta sem ég fékk og ákvað að hrinda í framkvæmd. Nú, ef veðrið verður ofboðslega leiðinlegt þá er hér gamalt fiskverkunarhús við bryggjuna sem hægt er að opna stórar dyr á og dansa inni í. Það er plan B.“ Ballið byrjar klukkan tíu að sögn Lindu og hún býst við að það standi til tvö. „Það er bara gamla góða sniðið á þessu,“ segir hún. „Svo kostar 2.000 kall inn á svæðið og það er posi á staðnum. Þetta verður örugglega gaman. Strandamenn hafa alltaf kunnað að skemmta sér.“
Mest lesið Megas er látinn Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Harry Styles setti heimsmet Lífið Fleiri fréttir „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Sjá meira