Atli leikur Atla í O, Brazen Age Guðrún Ansnes skrifar 24. september 2015 10:00 Atli í hlutverki Atla. Myndin verður sýnd þrisvar sinnum á RFF sem fram fer um þessar mundir.
stikla úr myndinni Ég leik þennan karakter sem er ákveðið tilbrigði við sjálfan mig, nema hann er bara aðeins furðulegri en ég auðvitað,“ segir Atli Bollason, leikari og bókmenntafræðingur, sem kemur til með að birtast gestum RFF á hvíta tjaldinu í kvöld, þegar kvikmyndin O, Brazen Age verður sýnd í Tjarnarbíói. Kvikmyndin er skrifuð af vini Atla, kanadíska leikstjóranum Alexander Carson, sem einnig leikstýrir.Stikla„Við kynntumst þegar ég var við nám í Kanada fyrir nokkrum árum, og ég lék í stuttmyndum fyrir hann á meðan ég var úti og svo aftur eftir að ég kom heim. Þær voru sýndar úti og önnur rataði á verðlaunapall stuttmynda í San Francisco, svo eitthvað sé nefnt,“ útskýrir Atli og heldur áfram: „Svo þegar hann hjólaði í sína fyrstu mynd í fullri lengd þá hafði hann samband og síðasta haust fór ég því aftur út og dvaldi mánaðarlangt við tökur.“ Myndin, sem fjallar um hóp listamanna í Toronto, er þannig upp sett að ekki er ein sérstök aðalpersóna, heldur margar sem saman skapa heildina. „Persónurnar eiga það sameiginlegt að reyna að skilja við æskuna og verða að fullorðnu fólki, og þar er ég Atli, listrænn guffalegur gaur,“ segir Atli og bætir við: „Þetta er einhvers konar þroskasaga og um leið hugleiðing um ljósmyndun, minningar og minjagripi sem dregur upp áleitna mynd af vináttu og trú á 21. öldinni.“stikla Segir Atli erfitt að segja til um hvort Carson hafi haft hann í huga við handritsskrifin, þó svo að sögupersónan beri sama nafn og Atli. „Ég á eftir að sjá myndina í heild sinni, svo kannski kem ég auga á það þá,“ bendir hann á og hlær lauflétt, og prísar sig eflaust sælan að geta séð myndina yfirhöfuð því minnstu munaði að hún yrði að engu. „Það kviknaði í heima hjá leikstjóranum, sem rétt svo náði að bjarga hörðu diskunum með myndinni á. Það munaði ansi litlu að öll vinnan bókstaflega fuðraði upp.“ Verður myndin sýnd þrisvar á RFF og á mánudag mun Atli sitja fyrir svörum að lokinni sýningu í Tjarnarbíói. Hann segir RFF fyrir löngu orðna órjúfanlegan hluta af viðburðadagatalinu og lætur sig ekki vanta. „Ég ætla að sjá sem flestar myndir, en sjálfur hef ég mest gaman af að sjá myndir eftir unga leikstjóra sem eru að fara af stað, kannski búnir að gera eina eða tvær myndir,“ segir Atli spenntur fyrir komandi kvikmyndaveislu.
Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Fleiri fréttir Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Sjá meira