Rauðhærður og freknóttur maður á fertugsaldri óskar eftir ábyrgum eiganda Stefán Árni Pálsson skrifar 24. september 2015 09:58 Guðmundur Garðar vinnur í dag hjá Landsvirkjun. vísir „
Það er alltaf jafn gaman að eiga afmæli á facebook og takk kærlega fyrir kveðjurnar fallega fólk. Sérstakar þakkir fá þau sem sáu ástæðu til að nota orð á borð við, ungi maður, kútur og strákur.“ Svona hefst stöðufærsla frá Guðmundi Garðari Gíslasyni sem auglýsir eftir eiganda af sjálfum sér á Facebook. Guðmundur er 33 ára lögfræðingur hjá Landsvirkjun sem ólst upp á Blönduósi. „Í fyrra gerði ég heiðarlega tilraun til að auglýsa eftir konu til undaneldis að sérstakri ósk föður míns sem þá hafði miklar áhyggjur af hjúskaparstöðu minni. Það er skemmst frá því að segja að sú auglýsing bar ekki tilskyldan árangur.“ Guðmundur segir að körfurnar hafi þá verið full miklar og hefur hann ákveðið að snúa þessi við í ár.Rauðhærður og freknóttur maður á fertugsaldri „Maður á fertugsaldri óskar eftir ábyrgum eiganda. Um er að ræða rauðhærðan og freknóttan mann, en það eru þó ekki hans einu kostir. Til gangs er hann hjólbeinóttur og útskeifur en þrátt fyrir það mikill dansari. Matgrannur og almennt ódýr í rekstri. Hann er að mestu uppalinn yngstur hjá einstæðri móðir ásamt þremur eldri systrum sem gerir hann einstaklega vel undirbúinn fyrir langar búðarferðir og þaulæfðan í hvers konar bið eftir kvenfólki.“ Hann segist vera með óþroskaðan húmor og almennur einfaldleiki geri honum kleift að umgangast börn og tengjast þeim á jafningjagrundvelli. „Hann er menntaður rafvirki og því nothæfur til almenns viðhalds á heimilinu. Einnig er hann menntaður og starfandi lögfræðingur og því almennt snyrtilegur til fara og vel að máli farinn. Auk þess er hann furðu heiðarlegur þrátt fyrir lögfræði menntun. Engin formleg greining hefur farið fram á honum en óhætt að segja að hér sé um að ræða lúða, eða nörd, en samt töff lúða. Kann á þvottavél og tekur fyrirmælum vel.“UtanbæjareintakGuðmundur segist í grunninn vera utanbæjareintak sem þurfi sinn skammt af hreinu lofti. „En hefur aðlagast Reykjavík með ágætum og ekkert því til fyrirstöðu að hafa hann þar áfram. Mjög einfalt er að hafa ofan af fyrir honum. Einnig stendur til boða að senda hann út á land í styttri tíma til upprunalegs eiganda.Tilboð óskast í PM. Hlusta á öll boð.“ Eins og áður segir þá starfar Guðmundur núna hjá Landsvirkjun í tímabundu verkefni sem lýkur um mánaðarmótin. Hann vantar því einnig vinnu sem fyrst. Það er alltaf jafn gaman að eiga afmæli á facebook og takk kærlega fyrir kveðjurnar fallega fólk. Sérstakar þakkir fá þ...Posted by Guðmundur Garðar Gíslason on 21. september 2015
Mest lesið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Sjá meira