Skipuleggja fjölmenn mótmæli í Moskvu 1. mars Atli Ísleifsson skrifar 6. febrúar 2015 10:58 Alexei Navalny fékk skilorðsbundinn dóm fyrir stuld í lok desembermánaðar síðastliðinn. Vísir/EPA
Fjölmennur mótmælafundur gegn Vladimír Pútín Rússlandsforseta í Moskvu er nú í undirbúningi. Aðgerðasinninn og lögmaðurinn Alexei Navalny hefur sótt um leyfi fyrir fundinum en hann hefur harðlega gagnrýnt forsetann síðastliðin ár. Navalny situr nú í stofufangelsi og hefur sent bréf til borgarstjóra Moskvuborgar og er fyrrum óligarkinn Mikhail Khodorkovsky er einn þeirra sem skrifa undir bréfið. Hafa þeir beðið um leyfi fyrir fund sem allt að 100 þúsund manns geta sótt. Rússnesk lög gera ráð fyrir að tilkynna þurfi um fyrirhuguð mótmæli með minnst fimmtán daga fyrirvara. Mótmælin munu fara fram sunnudaginn 1. mars, en hagfræðingar áætla að verðbólga í landinu nái methæðum í næsta mánuði. Gert er ráð fyrir að mótmælin klárist við hlið Kreml-hallar.Í frétt SVT segir að Khodorkovsky hafi í september sagst vera reiðubúinn að bjóða sig fram til forseta, takist Pútín ekki að stöðva spillingu í landinu og koma efnahagsmálum landsins í betra horf. Khodorkovsky var eitt sinn eigandi olíurisans Yukos og ríkasti maður Rússlands. Árið 2003 hlaut hann fangelsisdóm fyrir fjársvik, en var sleppt tíu árum síðar. Hann dvelur nú í Þýskalandi, en ekki er ljóst hvort hann verði viðstaddur mótmælin. Mótmælin hafa fengið nafnið „Vor“ (Vesna) og eiga að vera í anda þeirra friðsamlegu mótmæla sem fram fóru í Austur-Evrópu undir lok níunda áratugarins. Navalny segir að afsagnar Pútíns sé krafist. Navalny fékk skilorðsbundinn dóm fyrir stuld í lok desembermánaðar síðastliðinn. Fjölmargir hafa gagnrýnt dóminn og segja pólitískar ástæður hafa legið að baki sakfellingunni. Navalny og Khodorkovsky eru tveir af mest áberandi andstæðingum Pútíns forseta en þetta er í fyrsta sinn sem þeir leiða saman hesta sína með þessum hætti.
Mest lesið Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi Innlent „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Innlent Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Innlent Sósíalistar og Rússlandsvinir undir eitt þak Innlent Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Innlent Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fleiri fréttir Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi Sjá meira