Sprautuðu 1200 lítrum af vatni í vatnsslagnum Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 23. apríl 2015 16:15 Fötur, byssur og blöðrur. Allt var nýtt í slagnum í dag. Vísir/Andri Marinó „
Okkur langaði eftir svona langan vetur að fagna sumrinu,“ segir Fannar Páll Aðalsteinsson, markaðsstjóri hjá 66°Norður en hann stóð fyrir vatnsslagnum H2O15 á Lækjartorgi í dag ásamt Atla Bollasyni. „Eins vorum við að kynna regnfatnaðinn okkar. Það er engin betri leið til að prófa regnkápurnar en í alvöru vatnsstríði.“ Leikurinn hófst klukkan tvö í dag og kepptu sex tíu manna lið í þremur bardögum. „Þetta gekk út á það að hvert lið fékk vatnsfötur, vatnsbyssur og vatnsblöður og átti að klára að sprauta öllu vatninu yfir hitt liðið,“ útskýrir Fannar. „Það lið sigraði lotuna.“ Slökkviliðið hjálpaði til við að koma vatni á staðinn en Fannar segir að klárast hafi um 1200 lítrar í slagnum í dag. „Það var ansi góð mæting og ekki leiðinlegt veður sem við fengum, alveg sól og blíða. Við vorum rosalega ánægðir með útkomuna.“ Breiður hópur af fólki tók þátt í slagnum í dag. „Í fyrsta bardaganum voru aðallega krakkar um tvítugt, í öðrum bardaganum voru yngri krakkar og svo náðum við að plata foreldrana til að taka þátt í síðasta bardaganum.“ Til stendur að halda viðburðinn árlega og vonast Fannar eftir því að geta þróað hann ár frá ári. „Við ætlum að athuga hvort við getum látið þetta stækka. Erum strax farnir að hlakka til H2O16 að ári.“ Myndir frá viðburðinum má sjá hér að neðan. Fólk á öllum aldri tók þátt.Vísir/Andri MarinóÞvílíkt fjör.Vísir/Andri Marinó
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira