Latabæjarhátíðin í beinni útsendingu á Vísi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. ágúst 2015 14:00 Tveir eldfljótir krakkar í Latabæjarhlaupi um árið.
Reikna má með þúsundum barna í Hljómskálagarðinn á morgun að loknu Latabæjarhlaupinu. Sýnt verður beint frá skemmtuninni fyrir börnin á Vísi þar sem góðkunningjar barnanna úr Latabæ verða í banastuði. Börn í öðrum landshlutum eða þau sem eiga ekki heimangengt ættu því að geta fylgst með því sem fram fer heima í stofu. Latabæjarhlaupið hefst með upphitun við rásmark klukkan 13:15. Eldri hópurinn, sex til átta ára, hlaupa 1,3 kílómetra í kringum Tjörnina og verður ræst klukkan 13:20. Upphitun fyrir yngri börnin, fimm ára og yngri, hefst 13:30 og ræsing fimm mínútum síðar. Hlaupa þau 550 metra leið. Hlaupinu lýkur í Hljómskálagarðinum þar sem við tekur skemmtidagskrá klukkan 14. Sýnt verður beint frá henni á sjónvarpsstöðinni Bravó og Vísi. Reiknað er með því að útsendingin standi yfir í tæpa klukkustund.Skipulagning Latabæjarhlaupsins.Alda Dís og Páll Óskar taka lagið Bylgjan lofar svo flottasta garðpartýi ársins fyrir alla fjölskylduna í Hljómskálagarðinum klukkan 16. Fjölmargir íslenskir listamenn koma fram auk þess sem boðið verður upp á grillmat og gosdrykki klukkan 17 í boði Ali og Coke á meðan birgðir endast. Klukkan 16:30 verður boðið upp í dans kl. 16 30 þegar Jói, Thea og Hrafnhildur frá Dans & Jóga í Valsheimilinu stíga á svið og stjórna Zumba. Þannig verður hægt að hreyfa sig á grasinu áður en farið er í grillveisluna Klukkan 18:30 hefjast stórtónleikar Bylgjunnar og þar koma fram m.a. Mannakjöt, sem spiluðu í fyrsta skipti á Hinsegin dögum og Júníus Meyvant sem einnig treður upp á tónleikum X-ins við Bar 11 klukkan 17.Söngkonan María Ólafsdóttir kann vel við sig í bleika búningnum sem einkennir Sollu stirðu.vísir/pjeturMilljónamæringarnir ásamt Bjarna Ara og Bogomil Font snúa aftur eftir nokkra fjarveru en framundan eru stórtónleikar hjá sveitinni 12. september. Dikta, Stop Wait Go ásamt Öldu Dís, Friðrik Dór, Glowie og Maríu Ólafs. María Ólafs verður því bæði í hlutverki Sollu Stirðu á Latabæjarhátíðinni og svo komin í eigin föt á stórtónleikum Bylgjunnar. Tónleikarnir verða að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Bylgjunni, bæði í útvarpinu og hér á Vísi. Tónleikunum lýkur í tæka tíð fyrir gesti að rölta að Tjörninni til að fá gott útsýni að flugeldasýningunni sem hefst kl. 23.
Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Sjá meira