Að skila góðu dagsverki liggur í eðli mannsins Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 22. júlí 2015 13:00 Ásta kveðst líta svo á að nám sé eins og hvert annað starf. Því þurfi námsfólk nútímalegt tæki eins og annað vinnandi fólk. Vísir/Ernir Eyjólfsson „
Eftir að hafa leiðbeint nemendum í Háskóla Íslands um námsaðferðir í nær tuttugu ár sá ég hvernig aðlaga mætti aðferðirnar nútímaaðstæðum, því tölvur og vefur voru að verða stór þáttur í lífi nemenda. Ég er síðan búin að vinna í tíu ár að forriti sem hjálpar nemendum að bæta verklag sitt og árangur og nú er það loks tilbúið fyrir markað. Það nefnist Nemanet,“ segir Ásta Kristrún Ragnarsdóttir námsráðgjafi og bendir á að í seinni tíð hafi snjallsímar komið sterkir inn, sem enn auki á notagildi forritsins. Ásta segir Nemanet jafnvígt á námsgreinar og vera lipurt í notkun. Nemanet varðveiti alla námsvinnu notenda sinna eftir önnum og tímabilum, á AmazonCloud. Með tímanum verði til heildstæður, persónulegur þekkingarbanki auk þess sem árangursríkt vinnulag verði notendum tamt til frambúðar. „Grunnurinn að nýja Nemanetinu byggir á reynslu af tveimur beta-útgáfum sem ég gerði og voru prófaðar í skólum á höfuðborgarsvæðinu, á öllum skólastigum,“ upplýsir Ásta og segir Nemanetið fyrstu netlausn sinnar tegundar á heimsvísu. Vegna nýnæmis og sérstöðu segir verkefnið hafa notið styrks Tækniþróunarsjóðs Rannís. Reykjavíkurborg hafi einnig styrkt hana til að starfrækja heimanámsstofu í einn vetur og þangað hafi grunn- og framhaldsskólanemar sótt, sumir með foreldrum sínum. „Þátttaka og áhugi foreldra eru mikilvæg atriði fyrir árangur í námi,“ bendir hún á. Nemanet verður selt til einstaklinga. „Ég tel að það skipti máli að frumkvæði og áhugi komi frá notandanum. Þá er hann orðinn gerandi,“ segir Ásta og sálfræðingurinn kemur upp í henni. „Innri umbun kemur í kjölfar árangurs og hún er síðan hvatinn til að ná lengra og læra meira. Gildi ytri umbunar telur vissulegra líka þegar vel gengur, í formi góðra einkunna og jákvæðra umsagna í skólanum og heima. Nemanet byggir á viðgangi innri umbunar og leiðir til aukinnar námsánægju,“ segir hún. Ásta kveðst líta svo á að nám sé eins og hvert annað starf. Því þurfi námsfólk nútímalegt tæki eins og annað vinnandi fólk, enda sé sérhæfðan hugbúnað að finna í nánast hverri starfsgrein í atvinnulífinu.„Sérhæfður námsbúnaður þarf að taka mið af virkni heilans og notandi þarf að læra á sinn eigin heila eins og hvern annan hugbúnað,“ segir Ásta og bætir við: „Heimanám er einmanaleg iðja og afraksturinn er oft huglægur fremur en áþreifanlegur en Nemanet gerir námið markvissara og eflir lesskilning, skipulag og minni.“ Hún bendir á að mikil umræða sé um brottfall úr skólum, hnignandi lesskilning, slæma útkomu íslenskra nemenda í alþjóðlegum samanburði og inntökupróf, en fullyrðir að Nemanet sé tæki sem geti mætt þörfum nemenda og snúið vörn í sókn. „Valgeir, eiginmaður minn og samstarfsmaður, var einmitt að búa til einkunnarorðin Nemanet lætur verkin tala,“ segir hún glaðlega. „Við viljum nefnilega öll vinna vel, það liggur í eðli mannsins að skila góðu dagsverki.“
Mest lesið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Heiður að endurvekja falda perlu Palla Tónlist Frægustu mágar landsins Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Tónlist „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Sjá meira