Minnist þjáninganna með nöktum myndaþætti Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. júlí 2015 16:51 Hér er Nona Faustine á Wall Street. Mynd/Faustine
Djarfur myndaþáttur listamannsins Nona Faustine hefur vakið mikla athygli vestanhafs en á myndunum situr Faustine nakin fyrir á stöðum innan borgarmarka New York sem eru samofnir sögu svartra í Bandaríkjunum. „Ég þrái að vera þátttakandi, draga fram og minnast fólksins sem alla jafna hefur verið litið framhjá í sögu New York,“ segir Faustine í samtali við Mic en baksvið margra mynda hennar sækir hún í þjáningar þrælahaldsins. Myndin hér að ofan var tekin á Wall Street en strætið hefur svo öldum skiptir verið miðpunktur verslunar í borginni. Í dag fer þar fram verslun með skulda- og hlutabréf en á átjándu öld voru það mannslíf sem gengu kaupum og sölum. Á tröppum ráðhússins.Mynd/FaustineÁ þessari mynd er Faustine á tröppunum við Ráðhús New York-borgar en skammt undan stóð sögufrægur grafreitur svartra þar sem talið er að á annan tug þúsunda hafi verið grafnir. Tilvist grafreitsins hafði fallið í gleymsku áður en iðnaðarmenn grófu sig niður á hann við framkvæmdir árið 1991. Borgarstjóri New York, Bill de Blasio, og eiginkona hans, Chirlane McCray, afhjúpuðu hefðbundnari minnisvarða um grafreitinn í liðnum mánuði. Á myndinni hér að neðan má sjá eina mynd Faustine, þar sem þrjár hauslausar pappamyndir af henni tákna þrjá nafnlausa þræla sem grafnir eru við hlið eigenda sinna í kirkjugarði í Brooklyn.MYnd/FaustineHún er alltaf í hvítum skóm á myndum sínum en þá segir hún vera vísun til fjötra hins hvíta feðraveldis sem minnihlutahópar í Bandaríkjunum geti aldrei losað sig undan. Nánari umfjöllun um verk Faustine má nálgast á vef Mic.Mynd/faustine
Mest lesið Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlist Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Lífið „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Lífið Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur Lífið Patrick Muldoon er látinn Bíó og sjónvarp Ari Edwald selur í Garðabænum Lífið „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Lífið Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Lífið samstarf Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Lífið Fleiri fréttir Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Sjá meira